20 apríl 2026
/
Jöfnunarsjóður: Nýtt ákvæði um framlög fyrir lyftur í eldra húsnæði til að bæta aðgengi fatlaðs folk
Gerð hefur verið breyting á reglugerð um starfsemi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í því skyni að styðja betur við sveitarfélög vegna aðgengismála og efla þannig þjónustu við fatlað fólk um land allt. Breytingin felur í sér nýtt ákvæði sem heimilar sveitarfélögum að sækja sérstaklega um framlög vegna uppsetningar á lyftum í eldra húsnæði.
Með þessu móti er komið til móts við ákall frá sveitarfélögum og hagsmunasamtökum fatlaðs fólks. Bent hefur verið á að það geti bæði verið flókið og kostnaðarsamt að setja upp lyftur í eldra húsnæði.
Tilgangurinn er einnig að nýta betur fjármagn innan Jöfnunarsjóðs. Hingað til hafa umsóknir um lyftur fallið undir 3. gr. reglugerðarinnar, en með nýrri grein (4. gr. ) verða þær flokkaðar sérstaklega. Með því skapast aukið svigrúm til að veita stuðning við önnur brýn aðgengisverkefni á grundvelli 3. greinar.
Fyrstu umsóknir um framlag vegna lyfta voru afgreiddar á fundi ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þann 10. apríl sl.