21 apríl 2026

/

Reglugerð um tilkynningarskyldu vegna færanlegrar starfsemi í samráðsgátt

{image.Description}

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingu á reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, nr. 550/2018, sem kveður á um tilkynningarskyldu vegna færanlegrar starfsemi. Með færanlegri starfsemi er m.a. átt við jarðboranir og malbikunar- og steypustöðvar.

Með lögum, sem samþykkt voru á Alþingi þann 27. mars sl., um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála, er kveðið á um tilkynningarskyldu vegna færanlegrar starfsemi, þ.e. um staðsetningu fyrirhugaðrar starfsemi og áætlaðan verktíma. Einnig er þar kveðið á um heimild ráðherra til að setja í reglugerð nánari ákvæði um form og efni tilkynningar, þar á meðal um um tilkynningafrest.

Með reglugerðarbreytingunni er sett inn ákvæði um form og efni slíkrar tilkynningar og að tilkynning skuli að jafnaði send eftirlitsaðila með fjögurra vikna fyrirvara.

Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 12. maí nk.

Reglugerð um tilkynningaskyldu vegna færanlegrar starfsemi