21 apríl 2026
/
Reglugerð um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir kynnt til umsagnar
Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir drög að nýrri reglugerð til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. Reglugerðin skýrir hvernig ákvarðanir eru teknar þegar börn með miklar og fjölþættar stuðningsþarfir þurfa vistun í sérhæfð úrræði á vegum ríkisins.
Markmiðið er að gera skýrara hvaða börn falla undir þessi úrræði og hvernig málsmeðferðin fer fram. Þar verður meðal annars kveðið á um hlutverk sérfræðingateymis, aðkomu barns og foreldra, ákvörðun um vistun og reglulegt endurmat.
Um er að ræða börn sem glíma við flóknar þarfir og þurfa mikinn og sérhæfðan stuðning. Gert er ráð fyrir að aðeins verði gripið til vistunar utan heimilis þegar önnur úrræði hafa þegar verið reynd.
Reglugerðin byggir á samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá mars 2025 um aukna ábyrgð ríkisins á þessari þjónustu. Henni er ætlað að bæta þjónustu, skýra ábyrgð og tryggja að hagsmunir barnsins séu ávallt í fyrirrúmi.