21 apríl 2026
/
Úrskurður nr. 189/2026
Hinn 21. apríl 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 189/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU25110064
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 13. nóvember 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 30. október 2025, um að ógilda vegabréfsáritun hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 29. september 2025, og um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir um frávísun og ógildingu á vegabréfsáritun verði felldar úr gildi.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 15. september 2025, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir fimm daga dvöl frá 14. til 18. október 2025 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 22. september 2025, og heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 14. október til 10. nóvember 2025. Kærandi kom til Íslands 30. október 2025, með flugi frá Lundúnum, Bretlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. sama dag, var vegabréfsáritun kæranda ógilt og kæranda vísað frá landinu.
Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í athugasemdum við ákvörðun um ógildingu áritunarinnar kemur fram að tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar voru upp við umsókn um vegabréfsáritun og grunur sé um að vegabréfsáritun hafi verið fengið á fölskum forsendum.
Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að ferðaáætlun kæranda hafi ekki verið í samræmi við umsókn um vegabréfsáritun og að hann sé grunaður um svik við umsókn um vegabréfsáritun.
Samkvæmt samantekt lögreglu, dags. 10. nóvember 2025, hafi lögregla verið við hefðbundið landamæraeftirlit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 30. október 2025, þegar kærandi kom að landamærunum en hann hafi greint frá því að ætla ekki að dvelja á Íslandi. Af þeim sökum hafi honum verið boðið til frekari viðræðna í aðstöðu lögreglu. Kæranda hafi verið afhent upplýsingablað þar sem honum hafi verið kynntur réttur sinn til að hafa samband við lögfræðing á eigin kostnað, fulltrúa heimaríkis og viðurkennd mannréttindasamtök, sem hann kvaðst skilja. Kærandi hafi afþakkað túlk þar sem hann hafi skilið og talað ensku vel, en hann sé búsettur í Bretlandi. Í umsókn kæranda um vegabréfsáritun kemur fram að hann hafi ætlað að dvelja á nafngreindu hóteli á Akureyri frá 14. til 18. október 2025. Samkvæmt upplýsingum frá hótelinu hafi kærandi afpantað gistinguna. Aðspurður kvaðst kærandi ætla að dvelja á Íslandi í eina nótt og halda svo áfram til Austurríkis í gegnum Ungverjaland til að hitta vini sína. Aðspurður um breytingar á ferðaáætlun sinni kvaðst kærandi upphaflega hafa ætlað að koma til Íslands með vinum sínum sem hafi hætt við ferðina og því hafi hann skipt um skoðun og ákveðið að fara til Austurríkis í staðinn. Í vegabréfi kæranda hafi verið eldri áritun útgefin af austurríska sendiráðinu. Kærandi hafi framvísað farmiða frá Vínarborg til Lundúna 7. nóvember 2025. Ákveðið hafi verið að frávísa kæranda á grundvelli a- og c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga og ógilda vegabréfsáritun hans þar sem hann hafi ætlað að fara til Austurríkis í gegnum Ungverjaland og hafi ekki haft í hyggju að dvelja á Íslandi eins og fram hafi komið í umsókn hans um vegabréfsáritun. Kærandi hafi farið með flugi til Lundúna 31. október 2025.
Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 13. nóvember 2025. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 24. mars 2026. Greinargerð kæranda barst 7. apríl 2026.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda er byggt á því að ógilding vegabréfsáritunar hafi verið óréttmæt. Þrátt fyrir að ferðaáætlanir kæranda hafi breyst frá því sem upphaflega hafi komið fram í umsókn hans um vegabréfsáritun, verði að skoða hvort umrædd breyting hafi réttlætt ógildingu áritunar. Kærandi telji eðlilegt að ferðaáætlanir taki breytingum og það eitt og sér skuli ekki leiða til þess að vegabréfsáritun hans verði ógild, sérstaklega þegar um sé að ræða ferðalög innan Schengen-svæðisins. Kærandi hafi verið með vegabréfsáritun sem hafi heimilað honum inngöngu á Schengen-svæðið og hafi verið með áform um að dvelja innan þess. Kærandi vísar til þess að hann hafi sýnt fram á fjármagn inn á bankareikningi sínum og hann geti því staðið straum af kostnaði við dvöl sína. Þótt upphaflegur tilgangur hafi verið ferðamennska á Íslandi þá hafi sú áætlun breyst og hann ákveðið að halda áfram ferðalagi sínu annað innan Schengen-svæðisins. Kærandi telji að meta þurfi hvort umræddar breytingar á ferðaáætlun hans ásamt fjárhagsstöðu hafi í raun átt að leiða til þess að frávísun væri réttlætanleg. Kærandi hafi verið opinskár um breytta ferðaáætlun sína og sýnt fram á fjárhagslegt bolmagn. Kærandi telji að Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi ekki rannsakað mál hans nægilega vel en breyting á ferðaáætlun sé ekki sjálfkrafa vísbending um að vegabréfsáritun hafi verið fengin á fölskum forsendum. Kanna hafi þurft ítarlega ástæður þess að ferðaáætlun hans hafi breyst og hvort hafi í raun verið brotið gegn skilyrðum áritunarinnar svo frávísun væri réttlætanleg.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar
Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 22. september 2025. Áritunin heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 14. október til 10. nóvember 2025. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 30. október 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógild. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir merkt í reit um ógildingu og til skýringar merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í athugasemdum við ákvörðun um ógildingu áritunarinnar kemur fram að tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar upp við umsókn um vegabréfsáritun og grunur sé um að vegabréfsáritun hafi verið fengið á fölskum forsendum.
Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.
Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að tilgangur ferðar kæranda við komu hans hingað til lands hafi verið óljós og auk þess ekki verið í samræmi við ferðaáætlanir sem komu fram í umsókn hans um vegabréfsáritun. Hafi þannig verið tilefni til að ógilda vegabréfsáritun kæranda. Í umsókn um vegabréfsáritun hafi komið fram að kærandi vildi koma til Íslands sem ferðamaður.
Játa verður handhöfum vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum þegar svo ber undir, innan gildissviðs og marka útgefinna áritana, að því gefnu að breytingarnar eigi sér eðlilegar skýringar. Svigrúm til slíkra breytinga er þó ekki án takmarkana enda miðast útgáfa áritana við tilteknar forsendur sem verða að standast í meginatriðum. Í því samhengi skal t.a.m. litið til verulegra breytinga á fyrirhuguðum dvalartíma, tilvik þar sem útgáfuríki áritunar er ekki aðaláfangastaður, og tilvika þar sem fylgigögn eru þannig úr garði gerð að upphaflegri umsókn yrði hafnað með vísan til gagnanna. Meðal fylgigagna málsins er umsókn kæranda um vegabréfsáritun, dags. 15. september 2025, þar sem fram kemur að kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í fimm daga á tímabilinu 14. til 18. október 2025. Í fylgibréfi með umsókn um áritun kemur fram að kærandi hyggist koma hingað til lands sem ferðamaður. Framangreindu til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn á borð við flugbókanir frá Bretlandi til Akureyrar 14. október 2025 og frá Akureyri til Bretlands 18. október 2025 og hótelbókun á Akureyri 14. til 18. október 2025. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til Keflavíkur, 30. október 2025, hafi þær forsendur þó ekki staðist en kærandi hafi við komu til landsins greint frá því að ætla að dvelja á Íslandi í eina nótt og fara svo til Austurríkis í gegnum Ungverjaland að hitta vini sína. Kærandi ætlaði svo að fljúga aftur til Bretlands frá Austurríki 7. nóvember 2025. Kærandi framvísaði bókun á gistingu í Keflavík 30. til 31. október 2025, flugmiða frá Íslandi til Ungverjalands 31. október 2025 og frá Austurríki til Bretlands 7. nóvember 2025 og bókun á gistingu í Bratislava í Slóvakíu dagana 1. til 6. nóvember 2025.
Samkvæmt framangreindu hafði ferð kæranda, sem hann byggði umsókn um vegabréfsáritun á, tekið verulegum breytingum og var kærandi ekki lengur með bókað flug aftur til Bretlands frá Akureyri líkt og umsóknin kvað á um. Gögnin bera þá með sér að Ísland hafi ekki verið aðaláfangastaður kæranda en hann hugðist einungis dvelja í Keflavík í sólarhring og ferðast svo til nokkurra borga í Evrópu og dvelja þar í sjö daga. Af gögnum málsins er ljóst að tilgangur kæranda með umsókn hans um vegabréfsáritun til Íslands og koma hans hingað til lands hafi verið að komast inn á Schengen-svæðið og að Ísland hafi ekki verið aðaláfangastaður kæranda líkt og umsóknin byggði á. Samkvæmt framansögðu verður lagt til grundvallar að framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni hafi verið á röngum forsendum. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að útgáfa áritunar til handa kæranda hafi byggst á röngum forsendum og voru skilyrði fyrir útgáfu hennar því ekki uppfyllt þegar hún var gefin út. Var lögreglu því heimilt að ógilda vegabréfsáritun kæranda 30. október 2025 og er sú ákvörðun staðfest. Verður ekki fallist á með kæranda að brotið hafi verið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga við meðferð máls hans.
Ákvörðun um frávísun
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Nígeríu og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 20. september 2025.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 30. október 2025, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið staðfest af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 um för yfir landamæri er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Með vísan til framangreindra röksemda fyrir ógildingu vegabréfsáritunar kæranda voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu eru ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að ógilda vegabréfsáritun kæranda á grundvelli 1., sbr. 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 8. mgr. 20. gr. og 2., sbr. 4. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, og frávísa honum á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfestar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru staðfestar.
The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir