21 apríl 2026
/
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitastjórnarkosninga hófst 17. apríl
Kosning utan kjörfundar erlendis vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 hófst 17. apríl sl.
Kjörstaðir erlendis eru:
• Sendiskrifstofur Íslands (nema fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu í Brussel)
• Aðalræðisskrifstofur í Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk
• Hjá kjörræðismönnum
Sjá upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands og kjörræðismenn eftir löndum. Athugið að hafa þarf beint samband við viðkomandi kjörræðismann til að kjósa þar.
Í sendiráðinu í Róm verður hægt að kjósa alla virka
daga frá 10:00-16:30, eða eftir samkomulagi en við vekjum athygli á því að sendiráðið er lokað
1.maí.
Í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningaréttur á lögheimili og gildir í
því sveitarfélagi sem viðkomandi er skráður með lögheimili í.
Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir séu á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
Sýna þarf skilríki (vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini) á kjörstað.
• Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila.
• Athugið að senda þarf atkvæði beint á það sveitarfélag sem kjósandi er skráður með lögheimili í.
• Ef senda á atkvæði með pósti er ráð að kjósa tímanlega og þá þarf
sömuleiðis að taka mið af sendingartíma og áreiðanleika viðkomandi
póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
Á Ísland.is eru aðgengilegar upplýsingar um hvaðeina sem viðkemur framkvæmd kosninga, bæði á íslensku og ensku.