22 apríl 2026
/
Sjö umsóknir um nýtt og sameinað sýslumannsembætti
Sjö sóttu um nýtt embætti sýslumanns sem tekur til starfa 1. janúar 2027 þegar níu sýslumannsembætti verða sameinuð í eitt.
• Einar Jónsson, sviðsstjóri fullnustu- og skiptasviðs og staðgengill sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
• Jóhann Gunnar Þórarinsson, sviðsstjóri leyfisveitinga og eftirlits með gististöðum hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
• Kristín Þórðardóttir, sýslumaður á Suðurlandi og settur sýslumaður í Vestmannaeyjum.
• Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu.
• Skúli Hakim Thoroddsen Mechiat, löglærður fulltrúi hjá sýslumanninum á Vestfjörðum.
• Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum.
• Veturliði Þór Stefánsson, skrifstofustjóri skrifstofu þjónustu í utanríkisráðuneytinu.
Embættið var auglýst laust til umsóknar 27. mars og var umsóknarfrestur til 14. apríl . Umsóknarfrestur var framlengdur til 21. apríl. Dómsmálaráðherra skipar í embættið til fimm ára þegar nefnd sem metur hæfni umsækjenda hefur lokið störfum. Hæfnisnefnd verður skipuð á næstunni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Stofnun nýs sýslumannsembættis er stór breyting í íslenskri stjórnsýslu og er nýjum sýslumanni ætlað að leiða undirbúning og innleiðingu sameiningarinnar í nánu samstarfi við ráðuneytið.