22 apríl 2026

/

Skýrsla um eflingu náms í ferðaþjónustu

{image.Description}

Í nýrri skýrslu um uppbyggingu náms í ferðaþjónustu kemur fram að þörf er á heildarsýn og markvissum aðgerðum til að styrkja menntun í greininni. Skýrslan er unnin í tengslum við ferðamálastefnu til 2030, megininntak stefnunnar er áhersla á sjálfbærni á öllum sviðum, samkeppnishæfni og samfélagslegan ávinning á landsvísu.

Í skýrslunni kemur fram að ein af forsendum þess að markmið ferðamálastefnunnar náist sé að framboð náms og þjálfunar taki mið af þörfum atvinnugreinarinnar. Núverandi staða einkennist hins vegar af brotakenndu námsframboði sem hefur þróast án skýrrar heildarsýnar.

Kallað eftir hagnýtu starfsnámi og skýrari námsleiðum

Meginniðurstöður skýrslunnar sýna að þörf er á auknu framboði viðurkennds og hagnýts starfsnáms í ferðaþjónustu þar sem nám fer fram bæði á vinnustað og í skóla og tengist beint störfum innan greinarinnar. Einnig er lögð áhersla á mikilvægi þjónustutengds bóknáms sem undirstöðu fyrir frekara nám.

Fjögur lykilatriði eru dregin fram:

  • Efla aðgengi að námi þvert á skólastig

  • Styrkja tengsl og flæði milli náms á mismunandi þrepum

  • Efla fjölmenningarvitund og inngildingu

  • Byggja upp alþjóðlegt nám í afþreyingartengdri ferðaþjónustu

  • Alþjóðlegt nám og sérstaða Íslands

Sérstaklega er bent á tækifæri til að þróa alþjóðlegt nám í afþreyingarferðaþjónustu. Sérstaða Íslands og landfræðileg lega skapar ákveðið samkeppnisforskot og möguleika til að laða að nemendur. Slík þróun krefst þó sterkrar undirstöðu á lægri þrepum menntakerfisins og skýrrar námsleiðar frá grunnstigi til háskóla.

Tillögur skýrslunnar eru jafnframt hugsaðar sem fyrirmynd fyrir uppbyggingu náms á öðrum sviðum ferðaþjónustu.

Aðkoma stjórnvalda mikilvæg

Virk aðkoma stjórnvalda er talin forsenda þess að fyrirhuguð uppbygging nái fram að ganga. Takast þarf á við kerfislæga þætti innan menntakerfisins og framkvæmd námsleiða, auk þess að tryggja samstarf og stuðning atvinnulífsins.

Bent er á að ábyrgð á þróun nýrra námsleiða liggi nú að mestu hjá einstökum fræðsluaðilum, sem geti torveldað samræmda þróun.

Tillögur að aðgerðum og næstu skrefTil að hrinda framtíðarsýninni í framkvæmd eru lagðar fram eftirfarandi tilögur:

  • Skipun vinnuhóps sem útfærir næstu skref, fjármögnun og ábyrgð

  • Kortlagning starfa í afþreyingarferðaþjónustu

  • Uppbygging ferðamálabrautar til stúdentsprófs

  • Þróun starfsnámsbrauta og starfstengds örnáms á háskólastigi

Mikilvægt er að ná samstöðu milli stjórnvalda, menntakerfis og atvinnulífs um bæði framtíðarsýn og framkvæmd. Með markvissri uppbyggingu náms verði stefnt að því að styrkja grunn ferðaþjónustunnar til lengri tíma og styðja við sjálfbæra þróun greinarinnar.

Skýrslan er unnin af tveimur starfshópum sem í sátu fulltrúar frá eftirfarandi aðilum:

  • Alþýðusamband Íslands

  • Atvinnuvegaráðuneyti

  • Ferðamálastofa

  • Félag fjallaleiðsögumanna á Íslandi

  • Háskóli Íslands

  • Háskólinn á Hólum

  • Hilton Reykjavík Nordica

  • Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

  • Mennta- og barnamálaráðuneyti

  • Midgard Adventure

Formenn starfshópanna voru Haukur Harðarson hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar og Gunnar Þór Jóhannesson, prófessor við Háskóla Íslands.

Skýrsluna má nálgast hér
.