28 apríl 2026

/

Ísland með á stærstu netöryggisæfingu heims í fjórða sinn

{image.Description}

Hópur netöryggissérfræðinga frá Íslandi tók nýverið þátt í stærstu netöryggisæfingu heims, Skjaldborg 2026 (e. Locked Shields 2026), sem fram fór dagana 13.–24. apríl. Rúmlega 4.000 þátttakendur frá 41 landi tóku þátt í æfingunni og skipuðu 16 fjölþjóðleg lið sem kepptu sín á milli. Ísland myndaði sameiginlegt lið með Noregi og Atlantshafsbandalaginu.

Þetta var í fjórða sinn sem Ísland tekur þátt í æfingunni, sem haldin er árlega. Að þessu sinni samanstóð íslenski hópurinn af 17 sérfræðingum frá tíu opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum, þ.e. Reiknistofu bankanna, Íslandsbanka, Arion banka, Varist, Keystrike, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Syndis, Heilbrigðisstofnun Austurlands og Seðlabanka Íslands, auk CERT-IS og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.

„Þátttaka okkar í þessari æfingu er mikilvægur liður í að efla netvarnir á Íslandi. Hún veitir íslenskum sérfræðingum einstakt tækifæri til að læra af þeim bestu á alþjóðavettvangi og styrkir um leið samstarf opinberra stofnana og einkageirans og sameiginlega getu þeirra til að verna mikilvæga innviði landsins. Innviði sem við reiðum okkur á daglega í okkar lífi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Á þessum víðsjárverðu tímum sem við lifum er mikilvægara sem aldrei fyrr að við séum á tánum hvað þessi mál varðar og að við höfum getu til að mæta þeim ógnum og áskorunum sem að okkur steðja sem ein órofa og öflug heild.“

Æfingin er haldin af netvarnarsetri Atlantshafsbandalagsins, NATO Cooperative Cyber Defence Centre of Excellence (CCDCOE), og fer fram í raunsæju sýndarumhverfi. Þar takast liðin á við það verkefni að verja skáldað ríki gegn umfangsmiklum netárásum á tölvukerfi og mikilvæga innviði, svo sem orku-, veitu- og fjarskiptakerfi. Auk tæknilegra verkefna þurfa liðin einnig að bregðast við upplýsingaóreiðu, leysa lagaleg álitamál tengd átökum og sinna markvissri upplýsingagjöf.

Þá stuðlar hún einnig að auknu alþjóðlegu samstarfi Íslands á þessu sviði, bæði innan Atlantshafsbandalagsins og í tvíhliða samstarfi, meðal annars við Noreg og önnur bandalags- og samstarfsríki.