29 apríl 2026

/

Mál nr. 28/2026 Úrskurður 29. apríl 2026

Mál nr. 28/2026                    Eiginnafn:     Jósmundur (kk.)

Hinn 29. apríl 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 27/2026 en erindið barst nefndinni 25. mars 2026.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Jósmundur er myndað eins og samsett nafn með síðari liðinn -mundur. Fyrri liðurinn Jós- þekkist ekki sem nafnstofn í íslensku né getur hann talist leiddur af íslenskum orðstofni. Í greinargerð með frumvarpi til mannanafnalaga er útskýrt að ofangreind skilyrði um eiginnöfn feli ekki í sér þrengjandi ákvæði um um nafnstofna og hefur það í för með sér að merkingarlausar stafarunur eru heimilar sem nafnstofnar svo fremi þær brjóti ekki gegn ákvæðum laganna. Eiginnafnið Jósmundur (kk.) tekur íslenska eignarfallsendingu, Jósmundar, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Jósmundur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.