29 apríl 2026

/

Mál nr. 38/2026 Úrskurður 29. apríl 2026

Mál nr. 38/2026                    Millinafn:       Unn

Hinn 29. apríl 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 38/2026 en erindið barst nefndinni 20. apríl 2026.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Unn er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur ekki unnið sér hefð sem eiginnafn. Það er ekki talið geta orðið nafnbera til ama. Þá er nafnið ekki ættarnafn og uppfyllir því öll skilyrði laganna.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Unn er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.