29 apríl 2026

/

Ný skýrsla um öryggi aðfangakeðja á Norðurlöndum

{image.Description}
Forsíða skýrslunnar

Ný skýrsla Norrænu ráðherranefndarinnar um virðiskeðjur Norðurlanda sýnir að efnahagskerfi landanna eru í auknum mæli berskjölduð gagnvart alþjóðlegri spennu og truflun í aðfangakeðjum. Í skýrslunni kemur fram að Norðurlönd reiða sig mjög á innflutning á hráefnum og öðrum aðföngum, einkum frá Evrópu en einnig frá stórveldum á borð við Bandaríkin og Kína.

Helstu niðurstöður benda til þess að staða ríkjanna sé misjöfn. Noregur og Danmörk teljast hvað viðkvæmust, en Svíþjóð og Ísland standa betur að vígi með lægra hlutfall viðkvæmra innfluttra aðfanga.

Ísland sker sig úr

Ísland er meðal þeirra ríkja sem sýna mesta seiglu í skýrslunni. Aðeins um 1,2% af innfluttum millistigsafurðum (e. intermediate goods) teljast viðkvæmar, sem er lægsta hlutfallið á Norðurlöndum. Þetta bendir til fjölbreyttari og/eða stöðugri aðfangakeðja en víða annars staðar á svæðinu.

Í skýrslunni kemur jafnframt fram að Ísland sé í auknum mæli háð Kína varðandi innflutning á mikilvægum hráefnum, svo sem símum og öðrum fjarskiptabúnaði, og að Kína sé orðið stærsti einstaki birgir þessara aðfanga.

Innflutningur millistigsafurða er jafnframt stöðugur hluti af íslensku hagkerfi og nemur um 40% af heildarvöruinnflutningi. Á sama tíma er hlutfall mikilvægra hráefna í innflutningi lágt (um 1,2%), sem endurspeglar sérstöðu Íslands og mikla notkun innlendra endurnýjanlegra orkugjafa.

Áskoranir fram undan

Skýrslan varar við því að aukin verndarstefna og viðskiptahindranir, sérstaklega frá Bandaríkjunum, geti haft áhrif á útflutning Norðurlanda. Fyrir Ísland er Bandaríkjamarkaður sérstaklega mikilvægur, þar sem yfir 11% vöruútflutnings fer þangað.

Skýrslan undirstrikar að sama skapi að þrátt fyrir góða stöðu Íslands sé mikilvægt að fylgjast grannt með þróun aðfangakeðja, tryggja að Norðurlöndin verði ekki háð innflutningi frá einstaka ríkjum og efla samstarf Norðurlandanna til að auka megi efnahagslegt öryggi til framtíðar.

Skýrsluna má nálgast í heild sinni hér að neðan.

The Value Chains of the Nordics