29 apríl 2026
/
Reglugerð í Samráðsgátt: Skráning en ekki starfsleyfi vegna smærri jarðbora og osteopata
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingu á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 830/2022.
Með nýlegum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla, sem samþykkt voru á Alþingi þann 27. mars sl., varð sú breyting að í stað þess að gerð sé krafa um starfsleyfi vegna hverrar jarðborunarframkvæmdar er jarðborinn sjálfur starfsleyfisskyldur og hver borun tilkynningarskyld.
Jafnframt varð sú breyting að starfsemi osteopata var bætt við viðauka IV laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Breytingin á reglugerð nr. 830/2022 sem nú er kynnt í Samráðsgátt felur í sér að smærri jarðborar, þ.e. borar sem eru undir 1 MW, verða skráningarskyldir í stað þess að gerð sé krafa um starfsleyfi, auglýsingu og fjögurra vikna umsagnatíma vegna þeirra.
Jafnframt felur breytingin í sér að starfsemi osteopata er gerð skráningarskyld í stað þess að gerð sé krafa um starfsleyfi. Nú þegar er starfsemi sjúkraþjálfara og kírópraktora skráningarskyld, og er því talið rétt að það sé starfsemi osteopata einnig.
Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 13. maí nk.