30 apríl 2026

/

NB8-ríkin áréttuðu stuðning við Úkraínu

{image.Description}

Áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, Mið-Austurlönd, samskiptin yfir Atlantshafið og samstaða um halda áfram þrýstingi á Rússland var meðal umræðuefna á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) sem fram fór í Saaremaa í Eistlandi 29.-30. apríl. Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, tók þátt í fundinum.

Í sameiginlegri yfirlýsingu áréttuðu ráðherrarnir að þeir muni halda áfram að dýpka varnarsamstarfið við Úkraínu, sem og að Úkraína sé mikilvæg öryggi Evrópu. Eins er áréttað að ekki verði réttlátur og varanlegur friður í Úkraínu án ábyrgðarskyldu, og lögð áhersla á að Atlantshafsbandalagið sé áfram hornsteinn sameiginlegra varna bandalagsríkja, en framlag ESB er viðbót við þær og náið samráð nauðsynlegt.

Eistland fer með formennsku í NB8 samstarfinu um þessar mundir. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, var fulltrúi Íslands á fundinum í Saaremaa.