30 apríl 2026
/
Nýr kafli í þróunarsamvinnu Íslands og Malaví
Ísland og stjórnvöld í Malaví hafa undirritað samninga um ný verkefni í þremur héruðum Afríkuríkisins til ársins 2028 þar sem m.a. er kveðið á um endurbyggingu grunnskóla, byggingu heilsugæslustöðva og miðstöðva fyrir þolendur kynferðisofbeldis sem og bætt aðgengi að hreinu vatni fyrir þúsundir íbúa landsins. Héruðin sem um ræðir eru Balaka, Machinga og Salima og hafa þarlend stjórnvöld skuldbundið sig til að samfjármagna verkefnin að hluta, sem festir eignarhald og forgangsröðun heimafólks í sessi.
Nýju héraðsverkefnin bætast í hóp farsælla verkefna Íslands í Mangochi og Nkhotakota, þar sem samstarf við héraðsyfirvöld hefur skilað áþreifanlegum árangri. Áætlað er að verkefnin komi til með að stórbæta aðgang hundruða þúsunda íbúa Malaví að grunnþjónustu
„Þróunarsamvinna Íslands byggir á skýrum gildum; virðingu fyrir lýðræði og mannréttindum. Þau endurspeglast vel í þessum verkefnum sem styðja við fátækasta fólkið, berskjaldaða hópa og efla samfélög til framtíðar,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Það skiptir máli að stuðningur Íslands skili raunverulegum árangri fyrir þau sem standa höllum fæti, og við erum að sjá að héraðsnálgun Íslands gerir það sannarlega.“
Undirritun samninganna fór fram við hátíðlega athöfn í gær þar sem malavískir ráðherrar þökkuðu íslenskum stjórnvöldum stuðninginn. Í ræðu sinni sagði Dr. Davíð Bjarnason, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Malaví, að áfram verði stuðst við héraðsnálgun Íslands sem hafi gefið svo góða raun, með höfuðáherslu á afmörkuð og afskekkt svæði Malaví.
Á meðal nýju verkefnanna má nefna endurbyggingu sex grunnskóla þar sem rúmlega átta þúsund börn stunda nám. Þar er lögð sérstök áhersla á menntun án aðgreiningar fyrir börn með fatlanir. Þá stendur til að reisa þrjár heilsugæslustöðvar sem koma til með að þjóna yfir tvö hundruð þúsund manns, auk þess sem sautján sólardrifnar vatnsveitur verða byggðar sem munu tryggja hátt í sextíu þúsund manns aðgengi að hreinu vatni.
Þar sem mannréttindi, jafnrétti og umhverfismál eru ávallt í öndvegi þegar kemur að þróunarsamvinnu Íslands stendur til að reisa þrjár miðstöðvar fyrir þolendur kynferðisofbeldis og gróðursetja rúmlega milljón trjáa.