04 maí 2026

/

Þemaþingi Norðurlandaráðs í Ósló: Áhersla á áfallaþol og samvinnu

{image.Description}
Logi Einarsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, í þingsal norska Stórþingsins á þemaþingi Norðurlandaráðs í Ósló í apríl 2026. 
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, sótti nýlega þemaþing Norðurlandaráðs, sem fram fór á Stórþinginu í Ósló undir yfirskriftinni: „Eru Norðurlönd búin undir áföll? Sveigjanlegt samstarf og frjáls för til grundvallar seiglu Norðurlanda.“

Ráðherra tók þátt í fundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs þar sem hann sat fyrir svörum fyrir hönd samstarfsráðherra Norðurlanda og í fyrirspurnartíma samstarfsráðherra. Þar höfðu þingmenn Norðurlandaráðs tækifæri til að spyrja samstarfsráðherra Íslands og Færeyja út í málefni norrænnar samvinnu, en Danmörk og Færeyjar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu. Málefni Helsingforssamningsins voru meðal umræðuefnis en samstarfsráðherrar Norðurlanda ákváðu í mars sl. að stofna nefnd til að vinna tillögur að breytingu á samningnum. Einnig var rætt um fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar 2027, afnám stjórnsýsluhindrana og fleira.

Daglegur viðbúnaður og samvinna

Aðalræðumaður þemaþingsins að þessu sinni var forsætisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre, sem í ávarpi sínu kallaði eftir nánari og hagnýtari norrænni samvinnu á sviði viðbúnaðar. Í máli sínu lagði hann áherslu á hlutverk hvers og eins borgara í að efla viðbúnað og áfallaþol. Hann benti jafnframt á að „daglegur viðbúnaður“ snerist ekki eingöngu um hernaðarlegar varnir, heldur einnig um að tryggja daglega virkni samfélagsins á áfallatímum.

Aðstoðarheilbrigðis- og velferðarráðherra Úkraínu, Ihor Kopach, miðlaði reynslu Úkraínu af heilbrigðiskerfi landsins sem er undir gríðarlegu álagi og dró hann sérstaklega fram mikilvægi tækninnar og getu til að viðhalda heilbrigðisþjónustu við allar aðstæður.

Í formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja í Norðurlandaráði 2026 er almennt öryggi á Norðurlöndum efst á baugi og sett er fram skýr framtíðarsýn. Áætlunin byggir á heildstæðri nálgun á viðbúnaði þar sem hernaðarlegar, borgaralegar, efnahagslegar og félagslegar víddir eru nátengdar. Á árinu 2026 vinnur forsætisnefnd Norðurlandaráðs að uppfærslu á stefnu ráðsins um samfélagsöryggi, sem var samþykkt árið 2019.