04 maí 2026
/
Ráðherrar fengu skýrslu með niðurstöðum barnaþings afhenta
Sex börn úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna afhentu ráðherrum í síðustu viku skýrslu barnaþings sem var haldið í Hörpu í nóvember sl. Börnin kynntu niðurstöður þingsins fyrir ráðherrum og ræddu við þá um þau málefni sem á þeim brenna.
Helstu áherslumál barnaþings eru skýrara og jafnara einkunnakerfi, aðgengilegri íþróttir og tómstundir óháð efnahag, betri og fjölbreyttari matur í grunnskólum, að hlustað sé á börn og mark tekið á skoðunum þeirra, betri samgöngur, góð bókasöfn og að frítt sé í strætó.
Börnin ræddu sérstaklega við ráðherrana um málefni hinsegin barna á Íslandi og nauðsyn þess að efla fræðslu meðal bana og fullorðinna til að draga úr fordómum.
„Það var frábært að taka á móti þessum öflugu krökkum og hlusta á sjónarmið þeirra og tillögur um það sem betur má fara í samfélaginu. Í skýrslunni er lögð sérstök áhersla á að hlustað sé á börn og því gott að geta boðið þeim upp á beint samtal við ríkisstjórnina. Ég þakka krökkunum kærlega fyrir brýninguna,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.