04 maí 2026
/
UNESCO-dagurinn í Eddu á fimmtudaginn
Langar þig að fræðast um sundlaugamenningu á Íslandi og einstaka stöðu hennar á heimsvísu? Hefur þú áhuga á UNESCO heimsminjastöðum, jarðvöngum og vistvangi á Íslandi eða vilt kynnast því hvernig íslensk menningararfleifð og menntamál tengjast starfi UNESCO?
Á UNESCO-deginum í Eddu fimmtudaginn 7. maí kl. 13:00–16:30 verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem m.a. verður fjallað um þessi UNESCO-svæði hér á landi, tungumálatækni og framtíð fámennra tungumála í stafrænni framtíð, skráningar á lista UNESCO um Minni heimsins og starf Reykjavíkur sem bókmenntaborgar UNESCO. Einnig verður varpað ljósi á verkefni sem tengjast ungmennum og menntun í UNESCO-skólum á Íslandi og GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu. GRÓ starfar undir merkjum UNESCO og starfrækir fjóra skóla á sviðum sem skiptu höfuðmáli í þróun Íslands til velsældar.
Dagskráin er opin öllum áhugasömum um menningu, menntun, vísindi og alþjóðlegt samstarf.