05 maí 2026

/

Bresk sendinefnd kynnir sér innleiðingu kílómetragjalds

{image.Description}

Í síðustu viku kom bresk sendinefnd hingað til lands til að kynna sér reynslu Íslands af innleiðingu kílómetragjalds og afla sér fræðslu um framkvæmd kerfisins. Fyrirhugað er að kílómetragjald verði tekið upp þar í landi fyrir rafmagns- og tengiltvinnbíla árið 2028. Í sendinefndinni voru 12 sérfræðingar frá breska fjármálaráðuneytinu, samgönguráðuneytinu og tengdum stofnunum.

Sendinefndin fundaði bæði með sérfræðingum hjá hinu opinbera og fulltrúum hagsmunaaðila. Heimsóknin hófst með fundi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, þar sem ráðuneytið kynnti meðal annars uppbyggingu, innleiðingu og rekstur íslenska kerfisins. Þá heimsótti nefndin Skattinn og Samgöngustofu þar sem farið var yfir tæknilega þætti, svo sem skráningu aksturs, notendaupplifun og eftirlit með akstursmælum.

Sendinefndin hitti einnig fulltrúa hagsmunasamtaka, þar á meðal frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Bílgreinasambandinu, Samtökum verslunar og þjónustu ásamt fulltrúum frá bílaleigunefnd Samtaka ferðaþjónustunnar. Þar var meðal annars rætt um reynslu notenda, rekstrarumhverfi og áhrif kerfisins á markaðinn.

Heimsóknin er til marks um aukinn alþjóðlegan áhuga á nýjum leiðum til að tryggja sanngjarna og sjálfbæra tekjuöflun af umferð í ljósi orkuskipta í samgöngum og aukinnar notkunar sparneytnari ökutækja.