05 maí 2026

/

Ísland sótti fyrsta alþjóðlega fundinn um útfösun jarðefnaeldsneytis

{image.Description}
Fulltrúar um 60 ríkja tóku þátt alþjóðlegum fundi um útfösun jarðefnaeldsneytis

Ísland var meðal þátttakenda á fyrsta alþjóðlega fundi, svo nefndra „viljugra ríkja“ um útfösun jarðefnaeldsneytis sem haldinn var í Santa Marta í Kólumbíu dagana 27.–29. apríl. Alls sóttu fulltrúar um 60 ríkja fundinn og sat fulltrúi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins fundinn fyrir hönd ráðherra.

Á vettvangi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna hefur lengi verið reynt, án árangurs, að ná saman um áætlanir til að fasa út framleiðslu og notkun á jarðefnaeldsneyti. Í ljósi þess var ákveðið að kalla til þessa fundar í Kólumbíu að frumkvæði stjórnvalda þar og í Hollandi til að knýja málið áfram.

Á fundinum kynnti Ísland reynslu sína af árangursríkum orkuskiptum, annars vegar varðandi jarðhitavæðingu til húshitunar, þar sem bæði ríki og sveitarfélög spiluðu stórt hlutverk með skýrum markmiðum og styrkveitingum til jarðhitaleitar, þar sem hvatinn var ekki hvað síst orkukreppa á 7. og 8. áratugunum. Og enn er verið að styrkja jarðhitaleit á köldum svæðum. Einnig var komið inn á rafbílavæðingu, niðurfellingu vörugjalda á rafbíla, styrki og uppbyggingu hleðsluinnviða um allt land.

Á fundinum voru ræddar leiðir til að draga úr notkun og framleiðslu jarðefnaeldsneytis, en rekja má allt að 80% losunar gróðurhúsalofttegunda til jarðefnaeldsneytis. Ljóst er að aðstæður ríkja eru mjög mismunandi og stuðluðu umræður, sem fóru að mestu fram í óformlegum hópum, að opinskárri umræðu um áskoranir og lausnir. Meðal helstu áskorana sem  voru nefndar var fjármögnun orkuskipta, réttlát umskipti fyrir starfsfólk í olíuiðnaði og hvernig styðja megi ríki sem vilja draga úr framleiðslu.

Ákveðið var á fundinum að setja á laggirnar þrjá vinnustrauma sem snúa að gerð vegvísa um útfösun, bæði framleiðslu og notkunar jarðefnaeldsneytis; fjármálum og stuðningi við ríki í orkuskiptum, auk viðskipta og grænna fjárfestinga. Einnig verður settur á laggirnar alþjóðlegur vísindahópur sem á að styðja við ákvarðanatöku.

Markmiðið er að vinnan styðji við áframhaldandi umræður um útfösun jarðefnaeldsneytis á vettvangi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna.

Kallað verður til annars fundar í þessum hópi viljugra ríkja á Tuvalu á fyrri hluta næsta árs, undir forystu heimamanna og Íra.

Í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu er nú unnið að mótun loftslagsstefnu fyrir Ísland, auk þess sem unnið er að skilgreiningu á kolefnishlutleysi. Umræddir vegvísar að útfösun jarðefnaeldsneytis falla vel að þeirri vinnu og geta styrkt áframhaldandi stefnumótun Íslands á þessu sviði.