05 maí 2026
/
Íslenska ríkið sýknað hjá Mannréttindadómstól Evrópu
Mannréttindadómstóll Evrópu sýknaði í dag íslenska ríkið af kröfu Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, um að brotið hefði verið gegn rétti hans til málsmeðferðar fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli. Fjórir af sjö dómurum töldu að ekki hefði brotið gegn rétti Lárusar en þrír skiluðuð séráliti, þar sem einn var sammála niðurstöðu meirihlutans en tveir töldu ríkið hafa gerst brotlegt gegn 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Málið snýr að sakfellingu Lárusar eftir fjármálahrun. Árið 2015 var hann dæmdur fyrir umboðssvik af fjölskipuðum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, en hann skipuðu Símon Sigvaldason, Sigríður Hjaltested og Hrefna Sigríður Briem. Árið 2017 ómerkti Hæstiréttur dóminn vegna vanhæfis Sigríðar Hjaltested og vísaði málinu aftur til Héraðsdóms Reykjavíkur til efnislegrar meðferðar.
Í kjölfarið tók Héraðsdómur Reykjavíkur málið upp að nýju þar sem Sigríður vék sæti og Ingimundur Einarsson kom í hennar stað. Að öðru leyti sátu bæði Símon Sigvaldason og Hrefna Sigríður Briem áfram sem dómarar í málinu.
Héraðsdómur sakfelldi Lárus að endingu fyrir umboðssvik og dæmdi hann til fimm ára fangelsisvistar. Málinu var áfrýjað til Landsréttar sem staðfesti sakfellingu héraðsdóms en skilorðsbatt refsinguna vegna tafa sem orðið höfðu á málinu.
Fyrir Mannréttindadómstól Evrópu byggði Lárus á því að sjálfstæði og óhlutdrægni Hrefnu Sigríðar gagnvart Símoni hafi verið takmarkað vegna annmarka á þeim lögum sem giltu þá um skipun meðdómsmanna. Á það féllst meirihluti Mannréttindadómstólsins ekki.
Með lögum um dómstóla 50/2016 var fyrirkomulagi við val á meðdómsmönnum breytt. Lögð var áhersla á meiri formfestu og gagnsæi en áður hafði verið gert. Dómari hefur ekki eins frjálsar hendur og áður við val á meðdómsmönnum og getur eingöngu valið meðdómsmann af lista sem dómstólasýslan heldur. Val á þann lista byggir á opinberri auglýsingu eða ábendingu dómara og fram fer faglegt mat á hæfi meðdómsmanna áður en þeir komast á listann.
Með breytingunni var meðal annars komið til móts við athugasemdir GRECO, samtaka ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu, en fyrra kerfi var talið geta verið til þess fallið að draga úr sjálfstæði dómstóla.
Umrædd breyting á lögum tók gildi 1. janúar 2018 eða áður en mál Lárusar var tekið fyrir af innlendum dómstólum. Dóminn á ensku.