05 maí 2026
/
Hjálparstarf kirkjunnar fær styrk
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur veitt Hjálparstarfi kirkjunnar styrki til tveggja verkefna sem miða að valdeflingu kvenna og aukinni virkni, auk þess að draga úr félagslegri einangrun þeirra.
Saumó – tau með tilgang
Verkefnið er samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar og Hjálpræðishersins og er ætlað konum úr hópi innflytjenda, flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Því er ætlað að valdefla konurnar, veita þeim tilgang og félagsskap og ýta undir virkni.
- Konurnar hittast tvisvar sinnum í viku, sauma í sameiningu í nokkra klukkutíma og borða að því loknu saman hádegismat.
- Þær endurvinna efni sem almenningur hefur gefið og sauma fjölnota poka, töskur, diskamottur og fánaveifur auk þess sem þær hafa til dæmis heklað og gert skartgripi. Vörurnar má nálgast á vefnum saumo.is.
- Þær útskrifast síðan í kjölfar sjö þrepa saumanámskeiðs.
- Konurnar sækja auk þess vikulega íslensku- og samfélagskennslu í þrjár klukkustundir í senn.
- Verkefnið hóf göngu sína árið 2017 og hefur síðan þá stækkað í sniðum vegna mikillar eftirspurnar.
Hjálparstarfi kirkjunnar er veittur 13 milljóna króna styrkur til verkefnisins árið 2026 og 13 milljónir króna fyrir árið 2027.
Stattu með sjálfri þér
Stattu með sjálfri þér er tveggja ára virkninámskeið ætlað konum sem búa við örorku og eru með börn á framfæri. Markmiðið er að þátttakendur eflist í foreldrahlutverkinu, bæti sjálfsmynd sína og trú á eigin getu auk þess að styrkja félagslegt tengslanet sitt svo koma megi í veg fyrir félagslega einangrun.
- Hópurinn hittist vikulega í Grensáskirkju undir handleiðslu tveggja félagsráðgjafa Hjálparstarfsins sem halda utan um námskeiðið.
- Þangað koma fræðsluaðilar með ýmis erindi og fræðslu auk þess sem félagsráðgjafarnir bjóða upp á ákveðna fræðslu með hverjum hóp, svo sem fræðslu um meðvirkni, fjármál, áföll og samvinnu eftir skilnað.
- Félagsráðgjafar fylgja konunum einnig eftir í einstaklingsviðtölum og veita þeim heildstæðan stuðning.
Hjálparstarfi kirkjunnar er veittur 10,5 milljóna króna styrkur til verkefnisins árið 2026 og 10,5 milljónir króna fyrir árið 2027.
Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar. Vilborg sér um innanlandsstarf Hjálparstarfsins.