06 maí 2026

/

Mál nr. 793/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 793/2025

Miðvikudaginn 6. maí 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 5. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. september 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. september 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til greiðslu atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 5. desember 2025. Með bréfi, dags. 9. desember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 16. janúar 2026 þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Kæranda hefði verið birt ákvörðun um afturköllun með bréfi, dags. [15.] desember 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. janúar 2026, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð 9. mars 2026. Svar barst ekki. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. apríl 2026, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna kærumálsins. Umbeðin gögn bárust nefndinni 14. apríl 2026.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. september 2025, um að fella niður rétt kæranda til greiðslu atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hefði hin kærða ákvörðun verið afturkölluð.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kveður úrskurðarnefndin upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur afturkallað hina kærðu ákvörðun verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar vegna þeirrar ákvörðunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir