06 maí 2026
/
Mál nr. 84/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 84/2026
Miðvikudaginn 6. maí 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 30. janúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. janúar 2026, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 10. desember 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. janúar 2026, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hans væri réttur til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. janúar 2026. Með bréfi, dags. 3. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 26. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. mars 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hann hafi misst íbúðina sem hann hafi verið að leiga ásamt félögum sínum. Kærandi hafi ekki haft efni á að leigja einn þegar félagar hans hefðu leitað að öðru húsnæði. Kærandi hafi flutt til foreldra sinna sem búi út á landi, eða í tveggja klukkustunda fjarlægð frá fyrrum vinnustað hans. Að mati kæranda hafi verið óraunhæft að stunda þá vinnu áfram vegna mikillar keyrslu og veðurfars. Kærandi sé mjög ósáttur við tveggja mánaða biðtíma.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 10. desember 2025. Samkvæmt staðfestingu á starfstímabili frá fyrrum vinnuveitanda kæranda, B sem hafi borist stofnuninni samhliða umsókn, hafi kærandi sjálfur sagt upp störfum hjá atvinnurekanda. Í ferilskrá kæranda komi fram að hann hafi starfað sem vaktstjóri á starfstöð B í C og sem stöðvarstjóri í afleysingum. Í umsókn hafi komið fram að kærandi hafi sjálfur sagt upp störfum vegna búferlaflutninga. Þann 26. desember 2025 hafi borist skriflegar skýringar á ástæðum starfsloka hans hjá B. Í skýringum kæranda hafi komið fram að hann hafi neyðst til að segja starfi sínu lausu þar sem hann hafi ekki fundið leiguhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu á raunhæfu verði. Hann hafi því þurft að flytja búferlum út á land.
Með erindi, dags. 8. janúar 2026, hafi Vinnumálastofnun veitt kæranda frest til að skila frekari skýringum á starfslokum hans hjá fyrrverandi atvinnurekenda. Í erindinu hafi athygli kæranda verið vakin á mögulegum biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Engar frekari skýringar á starfslokum hafi borist frá kæranda.
Með erindi, dags. 21. janúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til starfsloka hafi réttur hans til atvinnuleysisbóta hins vegar verið felldur niður í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.
Í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi:
,,Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur á sök á.“
Orðalagið ,,gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik verið talin falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæðinu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf sé ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki uppsögn, séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Í athugasemdum sé þó sérstaklega fjallað um tvenns konar tilvik sem talin séu heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar sé það þegar um sé að ræða þau tilvik er maki hins tryggða hafi byrjað störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar séu það þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær. Í athugasemdum sé þó sérstaklega áréttað að við þær aðstæður sé gert að skilyrði að vinnuveitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ástæður áður en launamaðurinn láti af störfum. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Fyrir liggi að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá B. Ágreiningurinn snúi að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn í starfi teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi í fyrri úrskurðum sínum talið að almennt beri að gera ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið sé hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laganna.
Þær skýringar sem kærandi hafi gefið sem ástæðu fyrir uppsögn sinni lúti einkum að búferlaflutningum hans frá höfuðborgarsvæðinu út á land. Búferlaflutningar hafi einir og sér ekki talist gild ástæða í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar fyrir uppsögn á starfi. Komi helst til álita að líta til slíkra skýringa þegar knýjandi aðstæður kalli á flutning atvinnuleitenda svo sem ef fjölskyldan hafi þurft að flytja búferlum vegna starfa maka viðkomandi atvinnuleitanda eða aðrar óhjákvæmilegar ytri ástæður liggi að baki ákvörðun um að flytja á brott, segja upp starfi sínu og sækja í kjölfarið um atvinnuleysisbætur. Vinnumálastofnun fallist ekki á að það teljist til gildra ástæðna í skilningi ákvæðisins þegar umsækjandi taki sjálfur ákvörðun um að flytja búferlum vegna leigu- eða fasteignaverðs, enda liggi fyrir að hann hafi ekki verið með fast starf í hendi þegar hann hafi tekið þá ákvörðun að segja starfi sínu lausu.
Með hliðsjón af framangreindum sjónarmiðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda á starfslokum hans hjá B geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun telji því að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli 54. gr. laganna.
Með vísan til framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga í tvo mánuði samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:
„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“
Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður hans fyrir uppsögninni teljist gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.
Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 kemur fram að með ákvæðinu sé undirstrikað það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í því ljósi sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Tekið er fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Í athugasemdunum er þó sérstaklega vísað til tvenns konar tilvika sem talin eru heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar þau tilvik þegar maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær.
Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.
Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi sagt upp starfi sínu hjá B þar sem hann hafi flutt út á land eða í um tveggja klukkustunda keyrslufjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Kærandi hafi neyðst til að flytja þar sem hann hafi misst meðleigjendur sína og ekki haft efni á eigin leiguhúsnæði.
Líkt og fram kemur í athugasemdum við ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 þurfa sérstakar ástæður að liggja að baki uppsögn þegar einstaklingur hefur ekki tryggt sér annað starf til að heimilt sé að greiða atvinnuleysisbætur frá umsóknardegi. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er málefnalegt að gera þá kröfu til launþega að þeir segi ekki upp starfi sínu nema við ýtrustu nauðsyn þegar annað starf er ekki í hendi við mat á því hvort viðkomandi skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Ekki verður séð að slíkt eigi við í tilviki kæranda og er því ekki um að ræða gilda ástæðu fyrir uppsögn í skilningi 54. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi átti því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar hans um atvinnuleysisbætur, sbr. 1. mgr. ákvæðisins.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. janúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir