06 maí 2026

/

Styrkir Hugarafl

{image.Description}
Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Hugarafls, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra undirrita samkomulagið. Fyrir aftan þau standa Grétar Björnsson, formaður Hugarafls, og Rakel Björk Haraldsdóttir, varaformaður.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Hugarafls, hafa undirritað samkomulag um styrk til Hugarafls.

Hugarafl er starfrækt fyrir þau sem hafa gengið í gegnum andlegar áskoranir og aðstandendur þeirra. Hjá Hugarafli er einstaklingnum veittur stuðningur við að ná bata og stjórn á eigin lífi með einstaklingsmiðaðri nálgun. Nálgun Hugarafls er persónuleg og samstarf fagfólks og notenda geðheilbrigðisþjónustunnar fer fram á jafningjagrunni. Notendur móta eigin endurhæfingu og veita öðrum stuðning sem eru í svipuðu ferli.

Markmið Hugarafls eru: 

  • að uppræta fordóma í íslensku samfélagi, 
  • að efla hlutverk og þátttöku einstaklinga með andlegar áskoranir í samfélaginu, 
  • að efla þekkingu almennings og fagfólks á bataferli einstaklinga sem eru að efla geðheilsu sína, 
  • að kynna og starfa eftir hugmyndafræði valdeflingar og batamódelsins, 
  • að starfrækja og þróa þjónustu og úrræði fyrir einstaklinga sem eru að efla geðheilsu sína samkvæmt ofangreindri hugmyndafræði. 

Styrkupphæðin nemur 12 milljónum króna.

Grétar Björnsson, Auður Axelsdóttir, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Rakel Björk Haraldsdóttir.