06 maí 2026
/
Úrskurður nr. 195/2026
Hinn 6. maí 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 195/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU25120046
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 8. desember 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Bangladess (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 26. nóvember 2025, um að ógilda vegabréfsáritun hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 4. nóvember 2025, og um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir um frávísun og ógildingu á vegabréfsáritun verði felldar úr gildi.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 29. október 2025, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir átta daga dvöl frá 26. nóvember til 3. desember 2025 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 4. nóvember 2025, og heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 26. nóvember 2025 til 9. janúar 2026. Kærandi kom til Íslands 26. nóvember 2025, með flugi frá Lundúnum, Bretlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. sama dag, var vegabréfsáritun kæranda ógild og kæranda vísað frá landinu.
Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2, 10 og 12 þess efnis að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í athugasemdum við ákvörðun um ógildingu áritunarinnar kemur fram að lögreglan telji að umsókn um vegabréfsáritun hafi verið lögð fram undir fölskum forsendum en ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar voru í umsókn um vegabréfsáritun.
Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að tilgangur dvalar kæranda hér á landi og ástæða ferðarinnar sé ómálefnaleg og óljós.
Samkvæmt samantekt lögreglu, dags. 28. nóvember 2025, hafi lögregla haft afskipti af kæranda við landamæraeftirlit. Kæranda hafi verið boðið til frekari viðræðna í aðstöðu lögreglu. Samkvæmt umsókn kæranda um vegabréfsáritun hafi hann ætlað að heimsækja Ísland frá 26. nóvember til 3. desember 2025 og bókað gistingu hér á landi á því tímabili. Kæranda hafi verið kynntur réttur sinn til að fá túlk á tungumáli að eigin vali, réttur á lögfræðiaðstoð á eigin kostnað og réttur til hafa samband við fulltrúa heimaríkis og mannréttindasamtök. Viðtal kæranda hafi farið fram á móðurmáli kæranda með aðstoð túlks frá Language Line. Með umsókn um vegabréfsáritun hafi kærandi framvísað staðfestingu á flugi frá Íslandi til Lundúna 3. desember 2025. Aðspurður kvaðst kærandi ætla að dvelja á Íslandi í tvo daga sem ferðamaður og fara síðan til Frakklands í einn dag. Kærandi kvaðst vera með bókaða gistingu á tilteknu farfuglaheimili í Reykjavík í tvær nætur. Kærandi greindi frá því að hafa afbókað og breytt ferðaáætlun frá því að hann sótti um áritun vegna atvinnu sinnar en hann hafi þurft að mæta aftur til vinnu og ekki fengið leyfi allan þann tíma sem hann hafi ætlað að dvelja hér á landi. Kærandi hafi þurft að breyta ferðaáætlun sinni 19. eða 20. nóvember 2025. Kærandi kvaðst vinna á veitingastað í Lundúnum meðfram meistaranámi í lögfræði. Eftir samskipti lögreglu við gististað kæranda sem hann hafi tilgreint í umsókn um vegabréfsáritun kom í ljós að hann hafi átt bókaða gistingu frá 26. nóvember til 3. desember 2025 en afbókað gistinguna 14. nóvember 2025. Samkvæmt upplýsingum frá núverandi gististað kæranda hafi hann átt bókaða gistingu frá 26. til 28. nóvember 2025 og bókunin verið gerð 14. nóvember 2025. Ákveðið hafi verið að frávísa kæranda á grundvelli a- og c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga og ógilda vegabréfsáritun hans þar sem upplýsingar sem hann hafi gefið, bæði í viðtali og í umsókn um vegabréfsáritun hafi stangast á. Þá hafi upplýsingar sem hann hafi gefið um ástæður fyrir breytingu á ferðaáætlun verið mótsagnakenndar og lögregla því talið þær ósannar. Kærandi hafi farið með flugi til Lundúna 27. nóvember 2025.
Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 8. desember 2025. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 10. desember 2025. Greinargerð kæranda barst 9. janúar 2026 ásamt fylgigögnum.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að hann sé búsettur í Lundúnum á grundvelli námsmannaáritunar. Kærandi hafi neyðst til að breyta ferðaáætlun sinni og stytta ferðina þar sem hann hafi ekki fengið leyfi frá vinnu. Tilgangur ferðar kæranda hingað til lands hafi verið skýr en hann hafi ætlað að skoða landið. Kærandi hafi þegar greitt fyrir tvær leiðsöguferðir, annars vegar norðurljósaferð 26. nóvember 2025 og hins vegar dagsferð degi síðar. Kærandi vísar til þess að þó hann hafi farið dagavillt þegar lögregla hafi spurt um dagsetningu þess hvenær hann hafi breytt ferðaáætlun sinni geti það ekki talist óeðlilegt, sérstaklega í ljósi þess að kærandi hafi ætlað að koma hingað til lands þrátt fyrir styttri ferð og í sama tilgangi, þ.e. að skoða landið. Geti því framangreindur misskilningur ekki einn og sér uppfyllt skilyrði c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga til frávísunar. Þegar litið sé til gagna málsins, m.a. með vísan til tímalengdar fyrirhugaðrar dvalar kæranda hér á landi og að ekkert bendi til þess að kærandi hafi áður komið við sögu lögreglu, dvalið hér á landi með ólöglegum hætti eða stundað ólögmæta atvinnu, geti það ekki verið tilefni til að gera strangari kröfur til framlagningar gagna eða trúverðugleika framburðar kæranda. Þá sé ekkert í gögnum málsins sem bendi til þess að tilgangur dvalar kæranda hafi verið annar en framburður hans beri með sér. Kærandi vísar til þess að ákvörðun um frávísun sé íþyngjandi og Lögreglustjóranum á Suðurnesjum hafi borið að gæta meðalhófs við slíka ákvarðanatöku, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi telji sig hafa lagt fram fullnægjandi gögn með vísan til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Kærandi hafi uppfyllt öll formskilyrði, framvísað fullnægjandi gögnum, haft hreinan sakaferil, gefið trúverðuga skýringu á tilgangi ferðar sinnar og því hafi ákvörðun um frávísun verið skýrt brot á meðalhófsreglu. Vægara og réttara úrræði hefði verið að heimila honum för inn í landið á grundvelli þeirra gagna og skýringa sem þegar hafi legið fyrir að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu. Þá telur kærandi að brotið hafi verið gegn jafnræðisreglu, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrárinnar. Kærandi vísar til þess að það sé almennt viðurkennt að ferðamenn í stuttum ferðum skipuleggi sig með sveigjanlegum hætti og þurfi jafnvel að gera breytingar á ferðaáætlun sinni. Með því að gera þá kröfu til kæranda að hann legði fram ítarleg rök fyrir breyttri ferðaáætlun umfram þau gögn sem hann hafi þegar sýnt fram á og lögregla staðfest, hafi verið gerðar strangari kröfur til hans en annarra ferðamanna í sömu stöðu. Gögn málsins beri ekki annað með sér en að málefnalegar ástæður hafi legið til grundvallar breytingum á ferðaáætlun kæranda. Kærandi vísar til þess að í samantekt lögreglu sé innra misræmi sem beri með sér að málið hafi verið unnið í flýti og ekki verið rannsakað til hlítar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 603/2025 og telur að málsatvik séu sambærileg. Samkvæmt framangreindu beri að fella úr gildi hinar kærðu ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar
Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 4. nóvember 2025. Áritunin heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 26. nóvember 2025 til 9. janúar 2026. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 26. nóvember 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógild. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir merkt í reit um ógildingu og til skýringar merkt í reiti 2, 10 og 12 þess efnis að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í athugasemdum við ákvörðun um ógildingu áritunarinnar kemur fram að lögreglan telji að umsókn um vegabréfsáritun hafi verið lögð fram undir fölskum forsendum en ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar voru í umsókn um vegabréfsáritun.
Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.
Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að upplýsingar sem hann hafi gefið, bæði í viðtali og í umsókn um vegabréfsáritun hafi stangast á. Þá hafi upplýsingar sem hann hafi gefið um ástæður breytinga á ferðaáætlun verið mótsagnakenndar og lögregla því talið þær ósannar.
Meðal fylgigagna málsins er umsókn kæranda um vegabréfsáritun, dags. 29. október 2025, þar sem fram kemur að kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í átta daga á tímabilinu 26. nóvember til 3. desember 2025. Í fylgibréfi með umsókn um áritun kemur fram að kærandi hyggist koma hingað til lands sem ferðamaður. Framangreindu til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn á borð við flugbókanir frá Bretlandi til Íslands 26. nóvember 2025 og frá Íslandi til Bretlands 3. desember 2025 og hótelbókun í Keflavík á því tímabili. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til Keflavíkur, 26. nóvember 2025, hafi þær forsendur þó ekki staðist en kærandi hafi við komu til landsins greint frá því að ætla að dvelja á Íslandi í tvær nætur og fara svo til Parísar í Frakklandi 28. nóvember 2026 þaðan sem hann hafi átt flug til Lundúna 29. nóvember 2025. Kærandi hafi framvísað bókun á farfuglaheimili í Reykjavík 26. til 28. nóvember 2025, flugbókun frá Reykjavík til Parísar 28. nóvember 2025 og frá París til Lundúna degi síðar. Þá hafi hann jafnframt framvísað staðfestingu á bókuðum skoðunarferðum hér á landi. Kærandi kvaðst hafa þurft að breyta ferðaáformum sínum þar sem hann hafi ekki fengið leyfi frá atvinnuveitanda sínum alla þá daga sem hann hafi ætlað að dvelja á Íslandi.
Játa verður handhöfum vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum þegar svo ber undir, innan gildissviðs og marka útgefinna áritana, að því gefnu að breytingarnar eigi sér eðlilegar skýringar. Svigrúm til slíkra breytinga er þó ekki án takmarkana enda miðast útgáfa áritana við tilteknar forsendur sem verða að standast í meginatriðum. Í því samhengi skal t.a.m. litið til verulegra breytinga á fyrirhuguðum dvalartíma, tilvik þar sem útgáfuríki áritunar er ekki aðaláfangastaður, og tilvika þar sem fylgigögn eru þannig úr garði gerð að upphaflegri umsókn yrði hafnað með vísan til gagnanna.
Þegar litið er til gagna málsins er ljóst að ferðaáætlun kæranda var ekki í fullu samræmi við upphaflega ferðaáætlun sem gerði ráð fyrir lengri dvöl á Íslandi og beinu flugi aftur til Lundúna. Líkt og að framan er rakið hafa handhafar vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum, svo lengi sem þær breytingar eru innan vissra marka. Liggur fyrir að Ísland var enn aðaláfangastaður kæranda og lagði hann fram gögn sem studdu framburð hans varðandi breytingar á ferðaáætlun. Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki ráðið að lögreglan hafi óskað eftir skýringum frá kæranda varðandi millilendingu í París á leið sinni aftur til Lundúna eða upplýsingum um það hvort hann væri með bókaða gistingu þar í landi. Án slíkrar rannsóknar verður sá vafi sem uppi er í málinu hvað heimferð hans varðar ekki metinn slíkur að hann vegi þyngra en þau hlutlægu skilyrði sem kærandi uppfyllir fyrir tilgangi komu og dvalar hér á landi. Þrátt fyrir að fyrirhuguð ferð kæranda til landsins hafi tekið framangreindum breytingum á dvalartíma og flugi, einkum þegar litið er til upphaflegra ferðaáforma kæranda, verður ekki talið að þær breytingar séu óhóflegar og varði ógildingu vegabréfsáritunar. Samkvæmt framangreindu verður ekki talið að upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda hafi ekki verið áreiðanlegar eða að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um ógildingu vegabréfsáritunar felld úr gildi.
Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki tilefni til þess að fjalla um aðrar málsástæður kæranda hvað varðar ógildingu á vegabréfsáritun hans.
Ákvörðun um frávísun
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Bangladess og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 4. nóvember 2025.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 26. nóvember 2025, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið felld úr gildi af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því ekki uppfyllt.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 um för yfir landamæri er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Þegar litið er til gagna málsins liggur fyrir að þegar kærandi kom til landsins 26. nóvember 2025 hafi hann ætlað að dvelja hér á landi í tvær nætur og framvísaði bókun á gistingu í Reykjavík. Kærandi hafi jafnframt framvísað flugbókun frá Reykjavík til Parísar 28. nóvember 2025 og frá París til Lundúna degi síðar. Þá hafi hann jafnframt framvísað staðfestingu á bókuðum skoðunarferðum hér á landi. Jafnframt framvísaði kærandi nægu fjármagni fyrir dvöl sinni. Þær breytingar sem kærandi gerði á ferðaáformum sínum eru ekki óhóflegar og verða að teljast innan marka þess svigrúms sem handhafar vegabréfsáritunar hafa til þess að breyta ferðaáformum sínum. Þá verða skýringar kæranda á framangreindum breytingum ekki taldar ótrúverðugar.
Að virtum gögnum málsins eru skilyrði 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri uppfyllt. Að framangreindu virtu hefur kærandi leitt nægar líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvöl sinni hér á landi og eru skilyrði til frávísunar, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, því ekki uppfyllt. Er hin kærða ákvörðun því felld úr gildi.
Í ljósi þess að kærandi hefur fengið meginkröfu sína uppfyllta er ekki tilefni til þess að fjalla um aðrar málsástæður hans í úrskurði þessum.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu eru ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að ógilda vegabréfsáritun kæranda á grundvelli 1., sbr. 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 8. mgr. 20. gr. og 2., sbr. 4. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, og frávísa honum á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, felldar úr gildi.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru felldar úr gildi.
The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are vacated.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir