06 maí 2026

/

Veruleg fjölgun úrræða fyrir einstaklinga með heilabilun í samvinnu við Alzheimersamtökin

{image.Description}
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Ragnheiður Ríkharðsdóttir stjórnarformaður Alzheimersamtakanna og Guðlaugur Eyjólfsson framkvæmdastjóri

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja Alzheimersamtökunum rekstrarfé til að opna 16 – 17 ný dagþjálfunarrými fyrir fólk með heilabilun strax á næsta ári og jafnframt vilyrði fyrir fjölgun rýma í 33 árið 2028. Alzheimersamtökin hófu rekstur sambærilegrar þjónustu með 33 rýmum á St. Jósefsspítala árið 2022 sem kallast Seiglan og verður nýja þjónustueiningin rekin undir sama nafni og á grundvelli sömu hugmyndafræði. Ráðherra sagði frá ákvörðun sinni þegar hún ávarpaði Lausnamót Alzheimersamtakanna sem fram fór í dag.

Nýja Seiglan verður starfrækt í húsi sem margir þekkja sem Geðræktarhúsið við Kópavogsgerði 8 í Kópavogi þar sem Alzheimersamtökin hafa fengið tvær hæðir á leigu með samningi við Kópavogsbæ. Samtökin munu sjá um að innrétta húsnæðið og gera það sem best úr garði til að mæta þörfum notenda og þjónustuveitenda og starfsemi þar hefst í byrjun næsta árs.

Markmið og hugmyndafræði Seiglunnar er að veita fólki með fyrstu einkenni heilabilunarsjúkdóms þjónustu og stuðning sem viðheldur og styrkir andlega og líkamlega getu og daglega virkni. Tilgangur þjónustunnar er meðal annars að hægja á framgangi sjúkdómsins en sýnt hefur verið fram á að snemmtæk íhlutun er árangursrík til að draga úr og seinka versnun einkenna. Þjónustan er einstaklingsmiðuð og tekur mið af getu, óskum og þörfum þeirra sem þjónustunnar njóta. 

Fleiri fá þjónustu og biðtíminn styttist

Um 50 – 60 einstaklingar nýta á hverjum tíma þau 33 rými sem Alzheimersamtökin reka á St. Jósefsspítala en um 90 einstaklingar sem greindir hafa verið með heilabilunarsjúkdóm eru á biðlista eftir þjónustu.

„Tvöföldun á fjölda rýma í þjónustu Seiglunnar eins og að er stefnt mun hafa mikil áhrif fyrir þennan hóp; fjölga þeim sem fá þessa mikilvægu þjónustu og stytta bið þeirra eftir henni. Það getur skipt sköpum fyrir daglegt líf og lífsgæði þeirra sem í hlut eiga“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

„Það er mikil og vaxandi þörf fyrir þessa þjónustu og því er ég afar þakklát heilbrigðisráðherra og starfsfólki ráðuneytisins fyrir að koma þessu til leiðar. Við hjá Alzheimersamtökunum erum í skýjunum með þessa ákvörðun og hlökkum mikið til að hefja starfsemina í Geðræktarhúsinu í Kópavogi í byrjun næsta árs“ segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður stjórnar Alzheimersamtakanna.