07 maí 2026

/

180. Fundur stjórnar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ (FAO)

{image.Description}

180. fundur stjórnar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ (FAO) var haldinn 28. apríl síðastliðinn. Boðað var til þessa aukafundar vegna óskar frá sextíu og tveimur aðildarríkjum til að ræða þá stöðu sem upp er komin vegna ástandsins í miðausturlöndum, hækkunar á olíuverði og truflunar á flutningi matvæla á mikilvægum siglingaleiðum vegna átaka. Mikil áhersla var lögð á nauðsyn þess að halda siglingaleiðum opnum og að alþjóðalög væru virt. Fyrir fundinn höfðu Persaflóaríkin dreift drögum að ályktun frá fundinum. Rússar lýstu yfir efasemdum um þá ályktun en textinn var samt sem áður samþykktur í lok fundar með lófaklappi.

Guðmundur Árnason sendiherra flutti sameiginlegt ávarp Norðurlandanna sem sjá má í viðhengi ásamt skýrslu stjórnarfundarins í meðfylgjandi hlekk.

Skýrsla stjórnarfundarins

Ávarp Norðurlandanna