07 maí 2026
/
Hækkun lágmarksverðs mjólkur
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.
Eftirfarandi verðbreytingar tóku gildi þann 11. maí 2026.
- Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 2,47% úr 142,65 kr./ltr í 146,17 kr./ltr.
- Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar um 2,19%.
Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í desember 2025. Verðlagsgrundvöllur kúabús hækkar um 2,47% frá desember 2025 til mars 2026.
Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um sem nemur veginni kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Síðasta verðlagning byggði á verðlagi í desember 2025 og er reiknuð hækkunarþörf vinnslu- og dreifingarkostnaðar 1,89%.
Breytingar á heildsöluverði mjólkur og mjólkurvara byggja á kostnaðarbreytingum frá desember 2025 til mars 2026 en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 1,9%. Í mars mánuði er gert ráð fyrir áburðarkaupum bænda sem skýrir að ákveðnu leyti hækkun verðlagsgrundvallar umfram almennar verðlagsbreytingar.