07 maí 2026

/

Nýr samningur tryggir líflínu Hjálparsímans 1717

{image.Description}
Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Elín Halldórsdóttir framkvæmdastjóri RKÍ og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra

Heilbrigðisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu samning við Rauða krossinn á Íslandi (RKÍ) í dag um fjármögnun Hjálparsímans 1717. Samningurinn sem er til tveggja ára tryggir áfram mikilvæga þjónustu sem er opin allan sólarhringinn og veitir fólki sálfélagslegan stuðning þegar mest á reynir.

Samningurinn felur í sér 50 milljóna króna framlag til reksturs þjónustunnar og skapar þannig traustari grundvöll fyrir starf sem hefur reynst mörgum ómetanlegt. Fjármögnunin gerir Rauða krossinum kleift að viðhalda þjónustu allan sólarhringinn í síma 1717 og í netspjalli, þar sem fólk getur leitað stuðnings í trúnaði, án hindrana og á eigin forsendum.

Þjónusta Hjálparsímans nær til breiðs hóps fólks á öllum aldri. Þangað leita einstaklingar sem glíma við kvíða, vanlíðan, einmanaleika, áföll, ofbeldi eða sjálfsvígshugsanir. Stundum þarf aðeins einhvern sem hlustar. Stundum þarf að bregðast hratt við. Í öllum tilvikum skiptir máli að hjálpin sé til staðar þegar á henni þarf að halda.

Ráðherrarnir þrír leggja áherslu á að Hjálparsíminn 1717 sé mikilvægur hluti af samfélagslegu öryggisneti. Með sameiginlegri aðkomu ráðuneytanna er undirstrikað að sálfélagslegur stuðningur snertir mörg svið samfélagsins; heilbrigði, velferð, húsnæðisöryggi, börn, ungmenni og fjölskyldur. 

Um Hjálparsímann 1717

Hjálparsíminn 1717 er opinn allan sólarhringinn, bæði í síma og netspjalli. Þar veita sérþjálfaðir sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins virka hlustun, sálrænan stuðning og upplýsingar um úrræði sem standa fólki til boða.

Rúmlega 20 þúsund samtöl bárust Hjálparsímanum árið 2025. Þau sem sinna þjónustunni hafa fundið fyrir því að erindin hafa orðið þyngri og flóknari á undanförnum misserum og að fleiri samtöl taka lengri tíma en áður.

Árið 2025 var 1.728 sinnum haft samband við 1717 vegna sjálfsvígshugsana sem er oftar en nokkru sinnum áður. Í 229 tilvikum var haft samband við Neyðarlínuna og óskað eftir sjúkrabíl vegna alvarleika samtalanna.

Það sem af er árinu 2026 hafa tæplega 7.000 samtöl borist þjónustunni. Þar af hafa 533 samtöl snúið að sjálfsvígshugsunum og 546 að ofbeldi. Í 66 tilvikum hefur þurft að hafa samband við 112 vegna alvarleika máls.

Hjá Hjálparsímanum starfa tveir starfsmenn í fullu starfi og átta í hlutastarfi. Auk þeirra taka um 70 sérþjálfaðir sjálfboðaliðar vaktir, oftast um tvær í mánuði. Rauði krossinn leggur áherslu á að efla þurfi þann hóp enn frekar til að mæta vaxandi þörf fyrir þjónustuna.