08 maí 2026
/
Landssamtökin Þroskahjálp fá 25 milljóna króna styrk
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, hafa undirritað samning um 25 milljóna króna styrk til Þroskahjálpar.
Landssamtökin Þroskahjálp eru hagsmunasamtök fatlaðs fólks og leggja sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir, fötluð börn og fatlað fólk sem býr við margfalda jaðarsetningu. Meginhlutverk samtakanna er að beita sér fyrir bættum lífsgæðum, jöfnum tækifærum og fulltri þáttöku þess hóps í samfélaginu. Aðildarfélög Þroskahjálpar eru 22 talsins.
„Landssamtökin Þroskahjálp gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og hafa um árabil verið öflug rödd í réttindabaráttu fatlaðs fólks. Starf samtakanna skiptir miklu fyrir fatlað fólk og fjölskyldur þeirra um land allt,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.