11 maí 2026
/
Mál nr. 229/2026-Endurupptökubeiðni
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Beiðni um endurupptöku máls nr. 229/2026
Mánudaginn 11. maí 2026
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með beiðni, móttekinni 28. apríl 2026, óskaði A, eftir endurupptöku úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 22. apríl 2026, þar sem vísað var frá kæru vegna ákvörðunar Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 10. desember 2025, á þeim forsendum að kærufrestur væri liðinn.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 10. desember 2025, voru samþykktar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá 1. október 2025 til 31. maí 2026.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. mars 2026. Að lokinni gagnaöflun úrskurðaði nefndin í málinu 22. apríl 2026. Með úrskurðinum vísað nefndin málinu frá þar sem að kæra barst að liðnum kærufresti.
II. Sjónarmið kæranda
Í beiðni kæranda um endurupptöku greinir kærandi frá því að eftir að hún hafi fengið úrskurð nefndarinnar hafi hún fundið tölvupóst Tryggingastofnunar ríkisins frá 6. nóvember 2025 sem hún telji að skipti máli varðandi niðurstöðu nefndarinnar um kærufrest.
Í tölvupóstinum hafi stofnunin svarað erindi varðandi stöðu málsins og þar komi fram að engin umsókn eða synjun væri inni vegna maí 2025 á meðan önnur umsókn væri enn í bið eftir gögnum. Í lokin hafi henni jafnframt eingöngu verið bent á að kæra „færi fram í gegnum úrskurðarnefnd.“
Kærandi hafi ekki verið veittar skýrar upplýsingar um að kærufrestur væri þrír mánuði né hvaða afleiðingar það hefði ef fresturinn liði.
Það sé mat kæranda að þessi samskipti hafi átt þátt í misskilning hennar varðandi stöðu málsins og kærufrest. Á þessum tíma hafi kærandi einnig verið í virkri endurhæfing vegna kulnunar og áfallatengdra veikinda sem hafi gert henni erfitt með að átta sig á ferlinu og fylgja málinu eftir.
Með vísan til framangreinds og gagna málsins sé óskað eftir endurupptöku eða frekari skoðun málsins á grundvelli þessari upplýsinga.
III. Niðurstaða
Óskað er endurupptöku á úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 22. apríl 2026. Með úrskurðinum var kæru vísað frá nefndinni á þeim forsendum að hún hefði ekki borist innan kærufrests og að skýringar kæranda væru ekki þess eðlis að unnt væri að líta svo á að afsakanlegt væri að kæran hefði ekki borist fyrr. Þá var heldur ekki talið að veigamiklar ástæður mæltu með því að kæran yrði tekin til meðferðar, enda hafi ekki verið ráðið af gögnum málsins að ágalli væri á hinni kærðu ákvörðun sem leitt gæti til ógildingar hennar.
Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef ákvörðun stjórnvalds hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, sbr. 1. tölul., eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin, sbr. 2. tölul.
Aðili máls getur einnig átt rétt á endurupptöku máls á grundvelli annarra ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar, til að mynda ef ákvörðun stjórnvalds hefur byggst á röngu mati stjórnvalds.
Í beiðni um endurupptöku vísar kærandi til tölvupósts Tryggingastofnunar frá 6. nóvember 2025 varðandi upplýsingar um stöðu mála hennar hjá stofnuninni. Þá vísar kærandi til þess að hún hefði ekki verið upplýst um kærufrest eða afleiðingar þess ef hún myndi ekki kæra innan kærufrests.
Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála verður ekki ráðið af gögnum málsins að niðurstaða nefndarinnar hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 37/1993. Þá verður ekki séð að kærandi eigi rétt á endurupptöku málsins á grundvelli ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar. Að mati úrskurðarnefndar kemur ekkert fram í beiðni um endurupptöku sem gefur til kynna að úrskurðurinn hafi byggst á röngu mati eða verið háður verulegum annmörkum sem haft hafi áhrif á niðurstöðu hans. Ljóst er að kæranda var leiðbeint um kærufrest í ákvörðun Tryggingastofnunar frá 10. desember 2025.
Með hliðsjón af framangreindu er beiðni kæranda um endurupptöku máls úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 229/2025 synjað.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Beiðni A, um endurupptöku máls nr. 229/2026 hjá úrskurðarnefnd velferðarmála, er synjað.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir