11 maí 2026

/

Ráðherra fundaði með framkvæmdastjóra samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni

{image.Description}

Aðgerðaráætlun Íslands um líffræðilega fjölbreytni og samþætting málaflokka tengdum umhverfismálum var efst á baugi á fundi Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra með Astrid Schomaker, framkvæmdastjóra samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.

Schomaker lagði áherslu á mikilvægi þess að brjóta niður síló í stjórnsýslu umhverfismála. Ákvarðanir á einu sviði geti haft bein áhrif á önnur svið og því skipti máli að loftslagsmál, líffræðileg fjölbreytni, umhverfis-  og orkumál séu unnin í samhengi. Hún lýsti yfir ánægju með að þessir málaflokkar væru sameinaðir á Íslandi.

Jóhann Páll tók undir mikilvægi samþættingar og sagði tækifæri til að tengja enn betur saman aðgerðir í loftslagsmálum og vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Tók hann dæmi um  eitt forgangsverkefna ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum - endurheimt votlendis og vistkerfa. Endurheimt votlendis er ekki aðeins hagkvæm loftslagsaðgerð, heldur einnig mikilvæg náttúruverndaraðgerð og ein árangursríkasta aðgerðin til verndar líffræðilegrar fjölbreytni sem við getum ráðist í.

„Við leggjum áherslu á loftslags- og umhverfisverndaraðgerðir með margþættan ávinning. Þessa dagana erum við að leggja lokahönd á aðgerðaráætlun um líffræðilega fjölbreytni, til að fylgja eftir stefnu stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni sem við samþykktum fyrr á þessu ári. Sú aðgerðaráætlun verður nátengd forgangsverkefnum okkar í loftslagsmálum og mun spila vel saman við aðra stefnumörkun. Heilbrigð vistkerfi skipta máli fyrir loftslag, fæðuöryggi, vatnsbúskap, kolefnisbindingu og lífsgæði um allt land.” sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra.

Jóhann Páll og Astrid voru sammála um mikilvægi hafverndar til að tryggja líffræðilega fjölbreytni í hafi og þau ræddu nýlega samþykkt lög um vernd líffræðilegrar fjölbreytni á úthafi til innleiðingar á samningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni á úthöfum (Biodiversity Beyond National Jurisdiction).