11 maí 2026

/

Umsækjendur um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust sjö umsóknir um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti.

Umsækjendur:

  • Elvar Jónsson, leiðtogi farsældar barna
  • Guðmundur Stefán Gunnarsson, kennari og íþróttafræðingur
  • Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari og sérfræðingur
  • Hrafnhildur Hafberg, framhaldsskólakennari, alþjóðafulltrúi og kynningarstjóri
  • Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor
  • Nanna Kristjana Traustadóttir, sérfræðingur
  • Víðir Stefánsson, aðstoðarskólameistari

Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 8. apríl síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 27. apríl. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.