12 maí 2026
/
Forseti Íslands í vinnuheimsókn til Ítalíu
Halla Tómasdóttir forseti Íslands kom í vinnuheimsókn til Ítalíu dagana 3-5. maí sl. Í heimsókn sinni átti hún fund og snæddi hádegisverð með forseta Ítalíu Segio Mattarella í Quirinale-forsetahöllinni, ásamt Guðmundi Árnasyni sendiherra. Á þeim fundi var rætt um stöðu heimsmála og mikilvægi friðar og marghliða samstarfs ríkja í milli, auk þess sem rædd voru tvíhliða samskipti Íslands og Ítalíu, sem hafa farið mjög vaxandi á undanförnum misserum og árum.
Þá átti forseti einkafund með Leó IIV páfa í Vatíkaninu, þar sem hún hitti ennfremur að máli Pietro Parolin kardínála, sem er æðsti embættismaður í Páfagarði.
Á lokadegi heimsóknar sinnar heimsótti forseti einnig samnorrænu menningarstofnunina Circolo Scandinavo í Róm og fór til fundar við Carl Skau aðstoðarforstjóra, starfandi forstjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP). Þar kynnti hún sér starfsemi stofnunarinnar, sem Ísland styður ötullega.
Sendiherra bauð Íslendingum sem búa og starfa í Róm og nærliggjandi héruðum til mótttöku til heiðurs forseta Íslands og var hún vel sótt.