13 maí 2026
/
Ársskýrsla TR: 86.000 einstaklingar og fleiri en ein milljón innskráninga
Tæplega 86.000 einstaklingar fengu greiðslur frá Tryggingastofnun (TR) í fyrra og voru ellilífeyrisþegar rúmlega helmingur þeirra. Ríflega 20.000 einstaklingar fengu greiddan örorkulífeyri og um 8.600 einstaklingar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Heildargreiðslur TR námu tæplega 250 milljörðum króna á árinu. Þetta kom fram á ársfundi TR sem haldinn var fyrir skemmstu. Samhliða kom ársskýrsla stofnunarinnar út.
Umfangsmiklar kerfisbreytingar
Eitt stærsta umbótaverkefni í almannatryggingum í áratugi – var innleiðing nýs kerfis örorku og endurhæfingar sem tók gildi 1. september 2025. TR bara ábyrgð á innleiðingunni og þakkaði Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, starfsfólki TR fyrir að hafa sinnt verkefninu af ábyrgð og fagmennsku og sýnt af sér bæði seiglu og ríka þjónustulund.
Nýtt kerfi byggir á breyttri hugmyndafræði þar sem færni og þátttaka einstaklinga er metin í heildrænu samhengi. Innleiðing samþætts sérfræðimats, byggðu á ICF-kerfi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, markar grundvallarbreytingu frá fyrra matskerfi. Jafnframt urðu til nýir greiðsluflokkar og samstarf milli þjónustuaðila innan velferðar- og heilbrigðiskerfisins var aukið, meðal annars með stofnun svæðisbundinna samhæfingarteyma um allt land sem TR leiðir.
Margvísleg tölfræði í ársskýrslu stofnunarinnar
Greiðslur 2025
Í ársskýrslu TR er margvíslega tölfræði að finna.
-
Greiðslur vegna ellilífeyris námu 122,6 milljörðum króna
-
Greiðslur vegna örorkulífeyris námu 85,3 milljörðum króna
-
Sjúkra – og endurhæfingargreiðslur námu 28,4 milljörðum króna
-
Aðrar greiðslur námu 13,2 milljörðum króna.
Fjöldi stöðugilda óbreyttur
-
Í árslok 2025 störfuðu 111 starfsmenn hjá TR í 102,4 stöðugildum.
-
Á sama tíma og viðskiptavinum hefur fjölgað um rúm 22% á síðustu tíu árum hefur fjöldi stöðugilda staðið nær óbreyttur.
Rúmlega 78.000 símtöl og fleiri en ein milljón innskráninga
-
Á árinu 2025 afgreiddi TR tæplega 33.000 erindi og tók á móti rúmlega 78.000 símtölum. Yfir 22.000 viðtöl fóru fram í þjónustumiðstöðinni.
-
Stafræn þjónusta hefur jafnframt vaxið hratt. Fleiri en ein milljón innskráningar voru á Mínum síðum TR og heimsóknir á vefinn tr.is voru ríflega 1,2 milljónir á árinu.