13 maí 2026

/

Viðamikil úttekt á viðbrögðum vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga birt

{image.Description}

Starfshópur sem þáverandi dómsmálaráðherra skipaði á grundvelli laga um almannavarnir til að framkvæma ytri rýni á aðgerðum eða aðgerðarleysi viðbragðsaðila tengt jarðhræringum á Reykjanesskaga skilaði nýverið af sér viðamikilli skýrslu sem nú er birt á vef dómsmálaráðuneytisins.  

Skýrsla starfshópsins.

Starfshópurinn var skipaður þeim Hafsteini Dan Kristjánssyni, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík sem jafnframt var formaður, Kjartani Þorkelssyni, fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurlandi, og Sóleyju Kaldal, áhættustýringar og öryggisverkfræðingi.  

Tíminn sem nefndinni var falið að skoða var frá því að óvissustigi almannavarna var lýst yfir 25. október 2023 og þar til nefndin var skipuð, 7. nóvember 2024.  

Í 14. kafla skýrslunnar er fjallað um banaslys sem varð í Grindavík þann 10. janúar 2024 þar sem Lúðvík Pétursson lést þegar hann var þar við störf. Starfshópurinn fundaði með bróður Lúðvíks við gerð skýrslunnar. 

Eitt flóknasta almannaverkefni sem Ísland hefur staðið frammi fyrir 

Jarðhræringarnar á Reykjanesskaga eru eitt stærsta og flóknasta almannaverkefni sem íslenskt samfélag hefur staðið frammi fyrir á síðari árum þar sem reynt hefur á samhæfingu, úthald og faglega getu viðbragðsaðila.  

Í skýrslunni koma fram ábendingar um það sem betur hefði mátt fara og tækifæri til úrbóta, meðal annars við skráningu og varðveislu gagna og upplýsinga. Starfshópurinn er engu að síður meðvitaður um að oft hafi verið þörf á snörum handtökum og telur að heilt yfir hafi viðbragð almannavarnarkerfisins gengið vel.  

Ráðuneytið hefur afhent embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Suðurnesjum skýrsluna og beint því til embættanna að ráðast í umbætur á grundvelli hennar. Ráðuneytið mun fylgja skýrslunni eftir og þeim ábendingum sem þar koma fram.