15 maí 2026
/
Nýr fangelsismálastjóri tekinn til starfa
Ragna Bjarnadóttir tók í morgun til starfa sem nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar. Hún er fyrsta konan til að gegna þessu embætti og fyrsti nýi forstjóri stofnunarinnar í 18 ár en Birgir Jónasson hefur verið settur fangelsismálastjóri frá 2024.
Margvíslegar aðgerðir til að bregðast við alvarlegri stöðu í fangelsismálum
Ragna var flutt í embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar í lok mars með vísan til heimildar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Hún hafði verið skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu frá árinu 2017 og stýrt skrifstofu almanna- og réttaröryggis síðan 2025.
Ragna Bjarnadóttir tekur við embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar
„Það eru áhugaverðir tímar og talsverðar áskoranir framundan í fangelsismálum á Íslandi. Við erum að fara að byggja nýtt fangelsi sem verður mikil breyting en það eru líka fjölmörg önnur verkefni í gangi, stór og smá. Ég er mjög þakklát fyrir að ráðherra skuli treysta mér fyrir embættinu á þessum tímamótum. Ég hlakka mikið til að kynnast öllu því frábæra fólki sem vinnur að fangelsismálum og leiða stofnunina í gegnum þessar breytingar,“ segir Ragna.