15 maí 2026

/

Til umsagnar: Reglugerð um tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsóknum

{image.Description}

Heilbrigðisráðuneytið áformar að setja reglugerð um tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsókn á heilbrigðissviði. Mælt er fyrir um að þegar óskað er eftir þátttöku einstaklings í vísindarannsókn, skuli einnig óskað eftir samþykki hans fyrir upplýsingum um mikilvæga þætti sem varða heilsu hans, þ.m.t. erfðamengi, sem kunna að koma fram við framkvæmd rannsóknar. Kveðið er á um skyldu til að fræða viðkomandi þátttakanda um þessa þætti og hvaða þýðingu þeir geta haft fyrir hann. Virða skal rétt þátttakanda sem ekki vill fá slíkar upplýsingar og enn fremur upplýsa þátttakanda hvernig hann getur afturkallað samþykki sitt. Reglugerðin gildir um vísindarannsóknir á mönnum og er ætlað að tryggja hagsmuni þátttakenda. Mikilvægt er að fólk fái aðgang að upplýsingum sem greinast í vísindarannsóknum og geta haft þýðingu fyrir heilsufar viðkomandi, kjósi það svo. Drög að reglugerðinni hafa verið birt til  umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 10. júní næstkomandi.