17 maí 2026
/
Mál nr. 14/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 13. apríl 2026
í máli nr. 14/2026:
Alhliða pípulagnir sf. og
AH pípulagnir ehf.
gegn
Nýjum Landspítala ohf.,
Aðallögnum ehf.,
Íslenskum pípulagningaverktökum ehf. og
Rörtönginni ehf.
Lykilorð
Stöðvunarkröfu hafnað.
Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála hafnaði stöðvunarkröfu kærenda þar sem nefndin taldi að skilyrði 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup væru ekki uppfyllt.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 31. mars 2026 kærðu Alhliða pípulagnir sf. og AH pípulagnir ehf. (hér eftir „kærendur“) útboð Nýja Landspítalans ohf. (hér eftir „varnaraðili“) nr. I4077 auðkennt „Pipeworks/plumbing in the main treatment building, between floors 4 and K2“.
Kærendur krefjast þess að hið kærða útboð verði fellt úr gildi og kærunefnd útboðsmála leggi fyrir varnaraðila að auglýsa útboðið á nýjan leik með vísan til 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Jafnframt að samningsgerð milli varnaraðila og Aðallagna ehf. verði stöðvuð þar til endanlega hefur verið leyst úr kærunni. Verði fallist á þessar kröfur óska kærendur eftir að nefndin veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Þá krefjast kærendur þess í öllum tilvikum að varnaraðila verði gert að greiða þeim málskostnað.
Varnar- og hagsmunaaðila Aðallögnum ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum um hana. Athugasemdir bárust frá varnaraðila 10. apríl 2026.
Varnaraðili krefst þess aðallega að málinu verði vísað frá nefndinni en í öllu falli að öllum kröfum kærenda verði hafnað, þ.m.t. kröfu þeirra um að innkaupaferlið verði stöðvað um stundarsakir.
I
Með auglýsingu, sem mun hafa verið birt 3. september 2025, óskaði varnaraðili eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði á pípulagningarvinnu í kjallara K2 til 4. hæðar meðferðarkjarna sem verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Fjórir þátttakendur voru valdir í forvalinu, annars vegar kærendur og Landslagnir ehf. og hins vegar Aðallagnir ehf., Íslenskir pípulagningaverktakar ehf. og Rörtöngin ehf., sem stóðu sameiginlega að tilboði.
Útboðsgögn munu hafa verið gefin út 18. desember 2025. Í grein 3.0.0 í verklýsingu kom fram að í verkinu fælist afhending, uppsetning og fullnaðarfrágangur lagnakerfa innanhúss í nýjum Meðferðarkjarna Landspítalans við Hringbraut. Þá kom fram í greininni nánari upptalning á verkþáttum sem væru hluti útboðsins.
Í grein 1.1.9 í útboðslýsingu kom fram að óskaði bjóðandi eftir nánari upplýsingum eða frekari skýringum á útboðsgögnum, yrði var við ósamræmi í þeim sem gæti haft áhrif á tilboðsinnihald eða tilboðsfjárhæðina eða hefði athugasemdir við gögnin væri hann hvattur til að senda spurningar/athugasemd í útboðskerfinu eins snemma á tilboðstímanum og tök væru á og eigi síðar en á þeim degi sem fyrirspurnatíma lyki. Fyrir liggur að fyrirspurnarfrestur var framlengdur við meðferð útboðsins og lauk honum 4. mars 2026.
Í grein 1.2.3 í útboðslýsingu kom fram að allur kostnaður bjóðanda vegna verksins, hverju nafni sem hann nefndist, skyldi vera innifalinn í tilboðinu. Þá kom fram upptalning á ýmsum kostnaðarliðum sem skyldu innifaldir í tilboðinu. Samkvæmt grein 1.3.1 í útboðslýsingu var verð eina valforsendan í útboðinu.
Tilboð voru opnuð 12. mars 2026 og kom þar fram að tilboð hefðu borist frá fjórum bjóðendum. Tilboð Aðallagna ehf. var lægst að fjárhæð 4.925.568.528 krónur en þar á eftir kom tilboð frá Landslögnum ehf. að fjárhæð 4.938.859.537 krónur. Tilboð kæranda AH pípulagna ehf. nam 9.138.685.379 krónum og tilboð kæranda Alhliða pípulagna sf. nam 9.423.633.269 krónum. Þá nam kostnaðaráætlun varnaraðila 3.931.540.589 krónum. Bæði tilboðsfjárhæðirnar og kostnaðaráætlunin voru tilgreind án virðisaukaskatts í opnunarskýrslunni.
Svo sem fyrr segir barst kæra þessa máls nefndinni 31. mars 2026. Degi síðar tilkynnti varnaraðili að hann hefði ákveðið að velja sameiginlegt tilboð frá hagsmunaaðilum. Í tilkynningunni kom fram að biðtími samningsgerðar hæfist 2. apríl 2026 og lyki 13. sama mánaðar. Yrði ákvörðunin ekki kærð og útboðið stöðvað teldist heimilt að ganga til samninga við hagsmunaaðila frá og með 14. apríl 2026.
II
Kærendur byggja í meginatriðum á að samkvæmt útboðsgögnum hafi átt að gera ráð fyrir öllum kostnaði við gerð tilboðs og hafi í verklýsingu verksins verið gerð krafa um að verktaki ætti að annast verulega undirbúningsvinnu áður en eiginlegar framkvæmdir hefðust, svo sem deilihönnun lagnakerfa, undirbúning prófana, samþættingar kerfa og þátttöku í samræmingarfundum og fleira. Kostnaðaráætlun varnaraðila virðist hvorki hafa gert ráð fyrir né endurspeglað kostnað vegna þessara undirbúningsvinnu þrátt fyrir að hún hafi verið krafa samkvæmt útboðsgögnum. Feli þetta í sér verulegt ósamræmi milli annars vegar skilgreinds verkumfangs og hins vegar þeirra forsendna sem kostnaðaráætlun virðist byggja á. Ósamræmi að þessu leyti skapi mikla óvissu við tilboðsgerð, hættu á mismunandi túlkun bjóðenda á umfangi einingarverða og skert samanburðahæfi tilboða sem gangi gegn grundvallarreglum um jafnræði og gagnsæi. Það virðist hafið yfir vafa að tilboð lægstbjóðanda hafi ekki byggt á sömu þáttum og tilboð kærenda sem að þeirra mati stafi af óskýrleika útboðsgagna. Mikilvægt sé, áður en afstaða sé tekin til framkominna tilboða, að varnaraðili skýri sérstaklega hvort og með hvaða hætti kostnaðaráætlun varnaraðila taki tillit til umræddrar undirbúningsvinnu annaðhvort með uppfærðri kostnaðaráætlun eða skýrum, bindandi og skriflegum skýringum sem tryggi að allir bjóðendur hafi sömu forsendur við gerð tilboða. Til þess að þetta sé hægt sé óhjákvæmilegt að endurtaka útboðið og tryggja þannig að framangreindar upplýsingar liggi fyrir og að meginregla útboðsréttar og laga nr. 120/2016 um jafnræði bjóðenda, sbr. 1. og 15. gr. laganna sé gætt.
Varnaraðili byggir í meginatriðum á að kæran hafi borist utan kærufrests þar sem hún hverfist í öllum meginatriðum um ætlaðan óskýrleika og ósamræmi í útboðsgögnum, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Þá hafnar varnaraðili sjónarmiðum kæranda varðandi kostnaðaráætlun verksins. Af samanburði tilboða við kostnaðaráætlunina megi ráða að tilboð annarra bjóðenda hafi verið í góðu samræmi við kostnaðaráætlun varnaraðila í meginatriðum þó heildartilboðsfjárhæðir hafi verið nokkru hærri en áætlunin. Þá hafna varnaraðilar því að útboðsgögn hafi verið óskýr eða nokkurt ósamræmi hafi verið í þeim. Útboðsgögn hafi verið skýr um umfang verksins og hvernig bjóðendur skyldu áætla kostnað sinn af verkinu auk þess sem allir hafi haft sömu upplýsingar. Þá sé ekkert sem bendi til þess að aðrir bjóðendur hafi misskilið útboðsgögn eða vanmetið kostnað enda séu tilboð þeirra á svipuðu reiki og í góðu samræmi við kostnaðaráætlun varnaraðila. Séu tilboð kærenda virt heildstætt og borin saman við tilboð annarra bjóðenda verði ekki séð að þau hafi byggt á misskilningi um einstök atriði sem eigi rætur sínar að rekja til óskýrleika eða ósamræmis í útboðsgögnum. Tilboðin beri einfaldlega merki þess að kærendur hafi verulega ofmetið alla helstu verkþætti verksins.
III
Kæra málsins hafði ekki í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar eftir 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup enda var henni beint til nefndarinnar degi áður en varnaraðilar tóku ákvörðun um val tilboðs. Verður því leyst úr stöðvunarkröfu kærenda í ákvörðun þessari. Samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 er kærunefnd útboðsmála, að kröfu kæranda, heimilt að stöðva innkaupaferli um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, enda hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.
Á þessu stigi málsins verður miðað við að kæra málsins hafi borist innan kærufresta 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016.
Að mati kærunefndar útboðsmála verður að telja, eins og málið liggur fyrir nú, að ekki hafi verið sýnt fram að á útboðsgögn hafi verið svo óskýr að það hafi haft áhrif á samanburðahæfi tilboða. Kom þannig fram í útboðsgögnum að bjóðendur ættu að taka tillit til alls kostnaðar sem myndi falla til við verkið og voru verklýsingar ítarlegar um hvers væri ætlast af bjóðendum við framkvæmd verksins. Þá var á meðal fylgigagna útboðsins nokkuð ítarleg tilboðsskrá sem bjóðendur áttu að fylla út og skila með tilboðum sínum. Jafnframt er þess að gæta að bjóðendur gátu lagt fram fyrirspurnir við meðferð útboðsins, sbr. grein 1.1.9 í útboðslýsingu, og verður að telja að kærendum hefði verið í lófa lagið að óska eftir nánari skýringum frá varnaraðila ef þeir teldu eitthvað óljóst eða óhefðbundið í útboðsgögnum, svo sem varðandi umfang verksins eða að tiltekin undirbúningsvinna skyldi vera hluti tilboða.
Auk framangreinds er til þess að líta að mjög litlu munaði á fjárhæð tilboðs hagsmunaaðila og tilboðs þess bjóðanda sem átti næstlægsta tilboðið auk þess sem hvorugt þeirra tilboða var jafnlangt yfir kostnaðaráætlun varnaraðila og tilboð kærenda. Þá er það á ábyrgð bjóðenda að verðleggja tilboð sín og taka tillit til allra þeirra kostnaðarliða sem tilgreindir eru í útboðsgögnum.
Samkvæmt framangreindu og að virtum fyrirliggjandi gögnum og málatilbúnaði aðila að öðru leyti þykir mega miða við, eins og málið liggur fyrir nú, að ekki hafi verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim sem geti leitt til ógildingar útboðs varnaraðila. Samkvæmt þessu verður að hafna stöðvunarkröfu kærenda, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar aðilar hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.
Ákvörðunarorð:
Hafnað er stöðvunarkröfu kærenda, Alhliða pípulagna sf. og AH pípulagna ehf., vegna útboðs varnaraðila, Nýs Landspítala ohf., nr. I4077 auðkennt „Pipeworks/plumbing in the main treatment building, between floors 4 and K2“.
Reykjavík, 13. apríl 2026.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir