17 maí 2026

/

Mál nr. 9/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 14. apríl 2026
í máli nr. 9/2026:
Sporthöllin ehf.,
Eygló Egilsdóttir og
Garðar Heiðar Eyjólfsson
gegn
Vestmannaeyjabæ

Lykilorð
Sérleyfi. Bindandi samningur. Kröfu um stöðvun innkaupaferlis hafnað.

Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu kærenda um að innkaupaferli varnaraðila yrði stöðvað um stundarsakir þar sem kominn var á bindandi samningur milli aðila, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 10. mars 2026 kærði Sporthöllin ehf., Eygló Egilsdóttir og Garðar Heiðar Eyjólfsson (hér eftir „kærendur“) innkaupaferli Vestmannaeyjabæjar (hér eftir „varnaraðili“) nr. 20262 auðkennt „Rekstur og uppbygging heilsuræktaraðstöðu í Vestmannaeyjum.“

Kærendur krefjast þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi skilmála í greinum 5.1.2, 5.1.3 og 6.1.2 í útboðsgögnum. Þá gera kærendur kröfu um að kærunefnd útboðsmála stöðvi innkaupaferli varnaraðila um stundarsakir þar til endanleg niðurstaða kærunefndar liggur fyrir, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Í öllum tilvikum krefjast kærendur málskostnaðar.

Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 20. mars 2026 aðallega að kærunni verði vísað frá kærunefnd útboðsmála. Til vara er þess krafist að kröfu kærenda um stöðvun samningsgerðar um stundarsakir verði hafnað og að öðrum kröfum kærenda verði hafnað í endanlegum úrskurði. Varnaraðili krefst þess jafnframt að kærendum verði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð, verði talið að skilyrði 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup séu uppfyllt.

Samkvæmt grein 1.6 í útboðsgögnum var tilboðsfrestur til 20. mars 2026 og skyldi mat tilboða taka fimm daga. Tilboð voru opnuð þann 23. mars 2026 samkvæmt þeim gögnum sem lögð hafa verið fram í málinu. Varnaraðili sendi kærunefnd útboðsmála tölvupóst 25. mars 2026 og tilkynnti að tvö tilboð hefðu borist í hinu kærða útboði, mati tilboða væri lokið og varnaraðili hefði ákveðið að velja tilboð í nafni Lauga ehf. Í tilkynningu varnaraðila var tekið fram að biðtími samningsgerðar ætti ekki við í málinu þar sem um sérleyfissamning væri að ræða samkvæmt reglugerð nr. 950/2017. Væri því kominn á bindandi samningur milli varnaraðila og Lauga ehf.

Niðurstaða

Með hinu kærða útboði stefndi varnaraðili að gerð sérleyfissamnings í skilningi 23. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og 5. tölul. 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 950/2017 um sérleyfissamninga um verk eða þjónustu yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins.

Í 2. mgr. 12. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að ákvæði XI. og XII. kafla laganna gildi um opinbera sérleyfissamninga sem eru yfir viðmiðunarfjárhæðum reglugerðar nr. 950/2017 en að öðru leyti gildi lögin ekki um slíka samninga. Af þessu leiðir að 86. gr. laga nr. 120/2016, sem mælir meðal annars fyrir um biðtíma samningsgerðar og er að finna í VI. kafla laganna, á ekki við um sérleyfissamninga og er ekki að finna ákvæði í reglugerð nr. 950/2017 sem svarar til fyrrnefndrar 86. gr. laganna.

Í ákvörðun þessari er til úrlausnar krafa kærenda um að innkaupaferlið verði stöðvað um stundarsakir. Samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, sem er að finna í XI. kafla laganna, er kærunefnd útboðsmála, að kröfu kæranda, heimilt að stöðva innkaupaferli um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, enda hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.

Kæra málsins barst kærunefnd útboðsmála 10. mars 2026 og var varnaraðila tilkynnt þá þegar um kæruna. Í kærunni er því m.a. haldið fram að útboðsgögn séu þannig úr garði gerð að aðeins einn bjóðandi komi til greina, og gera kærendur kröfu um að tilteknir útboðsskilmálar, sem þeir telja að séu sniðnir að þeim bjóðanda, verði felldir úr gildi og jafnframt að innkaupaferlið verði stöðvað um stundarsakir. Þrátt fyrir fram komna kæru hélt varnaraðili innkaupaferlinu áfram og voru tilboð opnuð 23. mars 2026. Samkvæmt grein 1.6 í útboðsgögnum skyldi mat tilboða taka fimm daga. Engu að síður tilkynnti varnaraðili 25. mars 2026 bjóðendum að ákveðið hefði verið að velja tilboð í nafni Lauga ehf. í hinu kærða útboði, og jafnframt var tekið fram að biðtími samningsgerðar ætti ekki við. Væri því kominn á bindandi samningur milli aðila.

Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup kemur fram að eftir að bindandi samningur samkvæmt lögunum hefur komist á verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Þar sem varnaraðili hélt áfram með innkaupaferlið og hefur valið tilboð í nafni Lauga ehf. verður samkvæmt framangreindu að líta svo á að kominn sé á bindandi samningur milli varnaraðila og Lauga ehf. í kjölfar hins kærða útboðs. Er því óhjákvæmilegt að hafna kröfu kærenda um innkaupaferlið verði stöðvað um stundarsakir samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.

Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar þeir hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.

Ákvörðunarorð

Hafnað er kröfu kærenda, Sporthallarinnar ehf., Eyglóar Egilsdóttur og Garðars Heiðars Eyjólfssonar, um stöðvun á innkaupaferli varnaraðila, Vestmannaeyjabæjar, nr. 20262 auðkennt „Rekstur og uppbygging heilsuræktaraðstöðu í Vestmannaeyjum.“


Reykjavík, 14. apríl 2026


Reimar Pétursson

Kristín Haraldsdóttir

Auður Finnbogadóttir