20 maí 2026
/
1358/2026. Úrskurður frá 20. maí 2026
Hinn 20. maí 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1358/2026 í máli ÚNU 26030012.
Kæra, málsatvik og málsmeðferð
Með erindi, dags. 16. mars 2026 kærði […] ákvörðun Vestmannaeyjabæjar um afgreiðslu beiðni hans um gögn.
Með erindi til Vestmannaeyjabæjar, dags. 5. nóvember 2025, óskaði kærandi eftir greinargerð sem fjallað var um í fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyjabæjar nr. 324 frá 30. júlí 2025, og varðar stórskipakant.
Vestmannaeyjabær svaraði beiðni kæranda 2. febrúar 2026 með bréfi þar sem eftirfarandi kom fram: „Meðfylgjandi er slóð á umbeðna greinargerð: displaydocument.aspx.“
Í kæru kemur fram að kærandi telji ekki fullnægjandi afgreiðslu að senda slóð á opinberlega aðgengileg gögn þar sem hann þurfi að greiða fyrir aðgang að tölvu.
Kæran var kynnt Vestmannaeyjabæ þann 20. mars 2026, og sveitarfélaginu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að Vestmannaeyjabær afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Vestmannaeyjabær brást við erindi úrskurðarnefndarinnar 24. mars 2026 og sagði kæranda hafa verið sent vefslóð þar sem hann gæti nálgast gögnin. Þá kom eftirfarandi fram í erindinu:
Meðfylgjandi er slóðin:
https://ibuagatt.vestmannaeyjar.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=CHDptIuc00Gq6cz5XXqrQ1&meetingid=uPxtAAwkZE6JXVvaUXZb8A1&filename=2025%20St%F3rskipakantur%20%ED%20Vestmannaeyjah%F6fn%20-%20Loka%FAtg%E1fa1..pdf
Með erindi til kæranda, dags. 13. apríl 2026, var umsögn Vestmannaeyjabæjar kynnt kærða.
Kærandi brást við erindi nefndarinnar 20. apríl 2026. Í svari kæranda óskaði hann eftir því að málinu yrði haldið áfram og að úrskurðarnefndin tæki afstöðu til afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni hans um gögn.
Óþarft er að rekja nánar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við meðferð þess.
Niðurstaða
Í máli þessu er deilt um afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni kæranda um aðgang að gögnum. Kærandi óskaði eftir aðgangi að greinargerð sem fjallað var um á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyjabæjar 30. júlí 2025 um stórskipakant frá október 2025.
Fyrir liggur að gögnin sem kærandi óskar eftir eru aðgengileg opinberlega á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar.
Samkvæmt 1. mgr. 18. gr. upplýsingalaga skal veita aðgang að gögnum á því formi eða sniði og á þeim tungumálum sem þau eru varðveitt á, nema þau séu þegar aðgengileg almenningi, sbr. 2. mgr. 19. gr. laganna. Í 2. mgr. 19. gr. upplýsingalaga er tilgreint að þegar beiðni um aðgang að gögnum er afgreidd með vísan til þess að umbeðnar upplýsingar séu þegar aðgengilegar almenningi, og án þess að umbeðin gögn séu afhent, skal tilgreina nákvæmlega hvar og með hvaða hætti upplýsingarnar eru aðgengilegar.
Í þessu felst sú regla að ef gagn, sem óskað er aðgangs að, er þegar aðgengilegt opinberlega þá er ekki skylt að afhenda gagnið heldur er heimilt að láta við það sitja að tilgreina hvar hið opinbera eintak þess er að finna, sbr. einnig fyrri úrskurði nefndarinnar nr. 598/2015, 675/2017, 896/2020, 914/2020 og 943/2020. Það á við óháð því hvort greitt er fyrir afhendingu samkvæmt gjaldskrá nr. 306/2009.
Í fyrirliggjandi máli valdi Vestmannaeyjabær að afgreiða beiðni kæranda á þessum grundvelli, með vísan í vefslóð þar sem umbeðið gagn var aðgengilegt opinberlega. Slík afgreiðsla máls væri að öllu jöfnu fullnægjandi, eins og hér hefur verið rakið. Sú vefslóð sem Vestmannaeyjabær vísaði til í bréfi sínu til kæranda, „displaydocument.aspx,“ er hins vegar ekki virk með þeim hætti sem hún var afhent kæranda. Þá er ekki er hægt að slá slóðina inn í netvafra til þess að nálgast gögnin og í afgreiðslu bæjarins á beiðni kæranda komu engar aðrar upplýsingar fram um hvar eða hvernig væri hægt að nálgast gögnin.
Afgreiðsla bæjarins á beiðni kæranda var samkvæmt þessu haldin annmarka. Úr þeim annmarka ber Vestmannaeyjabæ að bæta með því að taka nýja ákvörðun um rétt kæranda til aðgangs að umbeðnu gagni, þar sem hann fær fullnægjandi upplýsingar um það hvar hið opinbera gagn er að finna.
Úrskurðarorð
Felld er úr gildi afgreiðsla Vestmannaeyjabæjar, dags. 2. febrúar 2026, á beiðni kæranda, […], um aðgang að greinargerð um stórskipakant í Vestmannaeyjahöfn frá október 2025, og lagt fyrir sveitarfélagið að afgreiða beiðnina að nýju.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir