20 maí 2026

/

Frammistaða nemenda úr einstökum grunnskólum á lokaprófum í framhaldsskóla

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um frammistöðu nemenda úr einstökum grunnskólum á lokaprófum í framhaldsskóla.

Tilefnið er fyrirspurn frá Alþingi þess efnis. Teknar voru saman upplýsingar um

  • hvaðan nemendur sem útskrifuðust úr framhaldsskóla á skólaárinu 2023–2024 höfðu lokið grunnskólanámi,
  • hlutfall innritaðra framhaldsskólanemenda á almennri bóknámsbraut sem luku framhaldsskólanámi á þremur árum skólaárið 2023–2024,
  • meðaleinkunn nemenda í íslensku og stærðfræði við lok grunnskóla fyrir hvern grunnskóla landsins,
  • meðaleinkunn nemenda við útskrift úr framhaldsskóla sundurliðað eftir grunnskólum,
  • meðaleinkunn í íslensku og stærðfræði við lok grunnskóla sundurliðuð eftir grunnskólum og framhaldsskólum.

Gögnin eru birt hér:

Í beinum samanburði milli skóla er bent á að einkunnir eru ekki samanburðarhæfar á milli grunnskóla eða á milli framhaldsskóla þar sem samræmt námsmat var ekki til staðar á því tímabili sem um ræðir. Einn helsti áhrifaþáttur á frammistöðu nemenda er menntunarstig og félagsleg staða foreldra, sem einnig ber að hafa í huga í samanburði milli skóla og milli svæða.