20 maí 2026
/
Skýrsla um orkunotkun skipaflutninga til Íslands
Norska ráðgjafarfyrirtækið DNV (Det Norske Veritas) vann greiningu á orkunotkun skipaflutninga á alþjóðlegum siglingaleiðum að beiðni innviðaráðuneytis og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.
Skýrslu DNV er ætlað að veita betri yfirsýn yfir stöðu Íslands hvað varðar flutningsaðstæður á sjó, meðal annars hvort ölduhæð og veðurskilyrði á Norður-Atlantshafi hafi áhrif á orkunotkun þar umfram aðrar siglingaleiðir. Greiningin byggir á siglingagögnum frá árinu 2025 og nær til 19 flutningaskipa sem sigldu til Íslands, auk samanburðar við hundruð skipa í Evrópu og á alþjóðlegum leiðum.
Niðurstöður greiningarinnar benda til þess að flutningaskip í reglubundnum siglingum til Íslands þurfi að jafnaði 7% meiri orku til að knýja skip en sambærileg skip í Evrópu og á heimsvísu. Af greiningunni má ráða að kostnaður vegna kolefnislosunar í alþjóðlegu regluverki fyrir skipaflutninga sé meiri hér á landi vegna siglingaaðstæðna en í mörgum öðrum ríkjum.