21 maí 2026
/
Helga Jóhannsdóttir skipuð rektor Menntaskólans við Hamrahlíð
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.
Helga hefur starfað við skólann í yfir 30 ár sem kennari, konrektor og sem settur rektor.
Helga er með B.S. gráðu frá Háskóla Íslands í tölvunarfræði auk kennsluréttinda frá sama skóla. Hún er einnig með diplómu í stærðfræði fyrir stærðfræðikennara og diplómu í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun.
Alls sóttu fimm um embættið.