21 maí 2026

/

Skarphéðinn Berg Steinarsson ráðinn verkefnisstjóri í málum Grindavíkur

{image.Description}
Skarphéðinn Berg Steinarsson

Skarphéðinn Berg Steinarsson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri forsætisráðuneytisins í málefnum Grindavíkur. Hann mun stýra samhæfingu af hálfu ríkisins varðandi Reykjaneselda og uppbyggingu Grindavíkurbæjar. Alls bárust 17 umsóknir um starfið sem er tímabundið til tveggja ára.

Lög um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ (Grindavíkurnefnd) falla úr gildi um næstu mánaðamót. Áfram verður starfandi stýrihópur Stjórnarráðsins um málefni Grindavíkur. Verkefnisstjóri í málefnum Grindavíkur mun eiga náið samstarf við Grindavíkurbæ og aðra haghafa í Grindavík, önnur sveitarfélög og haghafa í Reykjanesskaga, ráðuneyti, lögreglu, almannavarnir og aðrar stofnanir ríkisins.

Skarphéðinn hefur setið í Grindavíkurnefnd frá vorinu 2025 en hann hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og stjórnsýslunni. Hann hefur m.a. gegnt starfi ferðamálastjóra, verið forstjóri og framkvæmdastjóri ýmissa fyrirtækja auk þess að sinna ráðgjafastörfum, m.a. sem verkefnastjóri í atvinnumálum hjá Grindavíkurbæ. Áður var Skarphéðinn skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu.

Skarphéðinn er með MBA-gráðu frá Minnesota háskóla og próf frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands auk þess að hafa stundað framhaldsnám við ríkisháskólann í Oklahoma. Hann mun hefja störf í forsætisráðuneytinu 1. júní nk.