26 maí 2026

/

Úrskurður nr. 2/2026 - kæra A vegna sveitarstjórnarkosninga í Reykjavík.

Úrskurðarnefnd kosningamála

 

 

Ár 2026, 25. maí, kom úrskurðarnefnd kosningamála saman til að úrskurða um kæru A vegna sveitarstjórnarkosninga í Reykjavík hinn 16. maí 2026 og kveðinn upp svohljóðandi

ÚRSKURÐUR

nr. 2/2026

Mál þetta úrskurða Berglind Svavarsdóttir, Anna Tryggvadóttir og Unnar Steinn Bjarndal.

 

I.

Með tölvupósti, dags. 17. maí 2026, barst kæra frá A þar sem þess er krafist að sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík 16. maí 2026 verði úrskurðaðar ógildar vegna óheimillar birtingar á kjörseðli.

 

Kæruheimild er í 6. tl. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 112/2021 og barst kæran fyrir lok kærufrests samkvæmt 1. mgr. 128. gr. s.l.

 

Með tölvupósti 20. maí bárust nánari upplýsingar frá kæranda. Afstaða yfirkjörstjórnar Reykjavíkur vegna kærunnar barst 22. maí. Ekki bárust frekari athugasemdir.

 

II.

Kærandi lýsir málsatvikum þannig að á talningarstað Reykjavíkur í ÍR heimilinu á kosninganótt hafi fréttamaður í kosningasjónvarpi RÚV sýnt mynd af kjörseðli sem talinn var ógildur. Kærandi byggir á því að fram að úrskurði um gildi kjörseðils teljist kjörseðillinn gildur. Kærandi vísar til þess að kosningar á Íslandi séu leynilegar og því óheimilt að sýna kjörseðla.

 

III.

Í umsögn yfirkjörstjórnar kemur fram að yfirkjörstjórnin telur að myndbirting af kjörseðlinum í sjónvarpi hafi hvorki falið í sér annmarka né galla á framkvæmd kosninganna. Yfirkjörstjórn vísar til þess að talning atkvæða eftir kl. 22.00 hafi verið opin almenningi lögum og venju samkvæmt. Frá þeim tíma og til loka talningar hafi reglulega verið sjónvarpað frá talningu í kosningasjónvarpi RÚV eins og hefðbundið sé. Þá hafi jafnframt verið streymt frá talningunni á vef Reykjavíkurborgar frá því að kjörfundi lauk. Í talningu hafi verið úrskurðað um vafaatkvæði í hverri umferð en fyrir það hafi úrskurður verið undirbúinn af yfirkjörstjórn og/eða farið yfir einstök vafaatkvæði með umboðsmönnum framboðslista. Umræddur kjörseðill hafi verið vafaatkvæði í annarri umferð talningar. Um þau hafi verið úrskurðað kl. 02.20. Atkvæðið hafi þar verið úrskurðað ógilt. Mynd af kjörseðlinum hafi verið sjónvarpað kl. 03.04 og í beinu framhaldi hafi verið rætt við fulltrúa yfirkjörstjórnar um kjörseðilinn og hvernig farið væri með atkvæðið samkvæmt kosningalögum. Slík viðtöl við formenn eða fulltrúa yfirkjörstjórnar um framkvæmd kosninga og talningar séu algeng. Yfirkjörstjórn bendir á að í sveitarstjórnarkosningum fari yfirkjörstjórn sérstaklega með það verkefni að veita almenningi og fjölmiðlum upplýsingar, fræðslu og leiðbeiningar sbr. c lið 1. mgr. 14. gr. kosningalaga sbr. 2. mgr. Ákvæði kosningalaga hafi ekki að geyma takmörkun á myndatökum almennings eða fjölmiðla af talningu atkvæða enda um framkvæmdavaldsathöfn að ræða sem fram fari fyrir opnum tjöldum. Alvanalegt sé að fjölmiðlar birti myndir af framkvæmd talningar þar með talið af atkvæðabunkum eða framkvæmd talningar þar sem greina megi einstaka kjörseðla eða þeir sýndir. Þá sé hvorki í ákvæðum kosningalaga eða stjórnvaldsfyrirmæla að finna fyrirmæli þess efnis að óheimilt sé að sýna eða birta myndir af kjörseðlum í talningu, sem fram fari fyrir opnum tjöldum líkt og kærandi staðhæfi. Öðru máli gegni við atkvæðagreiðsluna sjálfa þ.e. þegar kjósandi greiðir atkvæði á kjörfundi. Þar gildi sú meginregla að kjósandi skuli gæta þess að enginn geti séð hvernig hann greiddi atkvæði sbr. 2. mgr. 87. gr. kosningalaga. Myndbirting af kjörseðli í kosningasjónvarpi RÚV geti því ekki talist brot á kosningalögum enda talning opinber en ekki leynileg. Þá áréttar yfirkjörstjórn að ekki hafi mátt ráða af kjörseðli þeim sem sýndur var í sjónvarpi vilja kjósanda enda seðillinn ógildur og af myndskreytingu á seðlinum verði heldur ekki ráðið um hvaða kjósanda var að ræða sem atkvæðið stafaði frá. Því beri að hafna kröfu kæranda í málinu.

 

IV.

Af kæru verður ráðið að grundvöllur kærunnar varði myndbirtingu og umfjöllun um kjörseðil í kosningasjónvarpi RÚV. Með birtingunni hafi verið brotið gegn þeirri meginreglu að kosningar skuli vera leynilegar.

 

Í 87. gr. kosningalaga nr. 112/2021 er kveðið á um frágang kjörseðils við atkvæðagreiðslu. Í 2. mgr. 87. gr. er þess getið að kjósandi skuli gæta þess að enginn geti séð hvernig hann greiddi atkvæði við frágang síns kjörseðils. Samkvæmt 100. gr. s.l. skal talning atkvæða fara fram fyrir opnum dyrum svo almenningi gefist kostur á að vera viðstaddur eftir því sem húsrúm leyfir.

 

Samkvæmt 1. mgr. 97. gr. kosningalaga hefst talning atkvæða eftir að kjörfundi er slitið. Talning atkvæða í Reykjavík hófst kl. 22.00. Atkvæðið sem um ræðir var úrskurðað ógilt kl. 02.20. Mynd af kjörseðlinum var sjónvarpað kl. 03.04. Ekki var ráðið af kjörseðlinum um hvaða kjósanda var að ræða sem atkvæðið stafaði frá.

 

Ekki er að finna neina takmörkun í kosningalögum á myndatökum almennings eða fjölmiðla af talningu atkvæða og þá er heldur ekki að finna nein fyrirmæli þess efnis að óheimilt sé að sýna eða birta myndir af kjörseðlum í talningu.

 

Það er því ekki hægt að fallast á það með kæranda að myndbirting RÚV af kjörseðli leiði til þess að atkvæðagreiðsla á kjörfundi hafi ekki verið leynileg og þar af leiðandi ólögmæt. Þá verður heldur ekki talið að um galla á framkvæmd talningar hafi verið að ræða, sem hafi leitt til ógildingar sveitarstjórnarkosninga í Reykjavík.

 

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda A um ógildingu sveitarstjórnarkosninga í Reykjavík er hafnað.

 

Reykjavík, 25. maí 2026.

 

Berglind Svavarsdóttir

 

Anna Tryggvadóttir                                                                            Unnar Steinn Bjarndal