26 maí 2026

/

Utanríkisráðherra fundaði með bandarískum öldungadeildarþingkonum

{image.Description}
Þorgerður Katrín með Catherine Cortez-Masto og Listu Murkowski.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í dag í utanríkisráðuneytinu með bandarísku öldungadeildarþingkonunum Lisu Murkowski, repúblíkana og Catherine Cortez-Masto, demókrata. Öldungadeildarþingkonurnar tvær komu til Íslands til þess að kynna sér stefnu íslenskra stjórnvalda í málefnum norðurslóða og ræða samskipti Íslands og Bandaríkjanna. Á fundi þeirra með utanríkisráðherra var áhersla á öryggis- og varnarmál á norðurslóðum, málefni Úkraínu, tvíhliða samskipti ríkjanna og tækifæri á sviði viðskipta s.s. samstarf við Ísland í nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa.  

„Það var ánægjulegt að taka á móti Murkowski og Cortez-Masto hér í Reykjavík. Heimsókn þeirra undirstrikar ríkan áhuga á Bandaríkjaþingi  á okkar nærsvæðum og mikilvægi þess að norðurslóðaríki vinni náið saman að brýnum hagsmunum í okkar heimshluta,“ segir Þorgerður Katrín. „Ég kynnti vitaskuld fyrir þeim áherslur Íslands í málefnum norðurslóða, nýja stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum, en svo ræddum við djúp tengsl ríkjanna tveggja allt frá lýðveldisstofnun til dagsins í dag. Mikilvægt er að rækta það samband.“