29 maí 2026

/

Átta umsækjendur um starf forstjóra Hafrannsóknastofnunar

{image.Description}
Hafrannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir HF 300 fyrir framan höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði.

Alls bárust til atvinnuvegaráðuneytis átta umóknir um embætti forstjóra Hafannsóknastofnunar. Embættið var auglýst 5. maí sl. og rann umsóknarfrestur út 22. maí.

Atvinnuvegaráðherra skipar forstjóra Hafrannsóknastofnunar til fimm ára í senn að undangengnu mati hæfnisnefndar. Hæfnisnefnd starfar í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og hefur til hliðsjónar reglur um ráðgefandi nefndir sem meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.

Listi umsækjenda er í stafrófsröð:

  • Arnljótur Bjarki Bergsson, sjávarútvegsfræðingur
  • Eggert Benedikt Guðmundsson, settur forstjóri
  • Guðmundur Jóhann Óskarsson, sviðsstjóri
  • Guðmundur Þórðarson, samningamaður
  • Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri
  • Kristín Harðardóttir, fiskifræðingur
  • Logi Einarsson, verkfræðingur
  • Óliver Snær Stefánsson, nemi