29 maí 2026

/

Mál nr. 46/2026 Úrskurður 29. maí 2026

Mál nr. 46/2026                    Eiginnafn:     Mikhael (kk.)

Hinn 29. maí 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 46/2026 en erindið barst nefndinni 19. maí 2026.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Mikhael (kk.) er ritháttarafbrigði nafnsins Mikaels og er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, sbr. úrskurði nefndarinnar í málum nr. 9/2006 og nr. 40/2014, þar sem umbeðnum rithætti nafnsins var hafnað. Aðeins er því unnt að samþykkja nafnið að hefð sé fyrir þessum rithætti þess.

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin endurnýjaði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:

  1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

    Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

    Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

    Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);

    Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
  4. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera tveir einstaklingar, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra, nafnið Mikhael. Sá eldri er fæddur 1982. Þá kemur nafnið ekki fyrir í manntölum frá 1703-1920. Ritmyndin Mikhael tíðkast í öðrum málum en þar sem um er að ræða ritháttarafbrigði af rótgrónu íslensku nafni, Mikael, er ekki unnt að samþykkja nafnið á grundvelli 4. töluliðar vinnulagsreglnanna. Ekki telst því vera hefð fyrir nafninu.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Mikhael (kk.) er hafnað.