29 maí 2026
/
Opin ráðstefna um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum
Fjármála- og efnahagsráðherra efnir til ráðstefnu í Hörpu 2. júní næstkomandi í tilefni af útgáfu skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Skýrslan var unnin af hópi erlendra sérfræðinga og er henni ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi.
Á ráðstefnunni mun Catherine L. Mann formaður sérfræðingahópsins kynna niðurstöður skýrslunnar og taka þátt í pallborði. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, flytja ávarp. Þá mun Boris Vujcic, varabankastjóri evrópska seðlabankans, ávarpa ráðstefnuna. Umræða verður í tveimur pallborðum. Tinna Finnbogadóttir sendiráðunautur fjármála- og efnahagsráðuneytisins í sendiráðinu í Brussel verður fundarstjóri.
Greining frá alþjóðlegum hópi sérfræðinga
Í júní í fyrra fól fjármála- og efnahagsráðuneytið fjórum sérfræðingum að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Verkefni hópsins var að meta kosti og galla sjálfstæðs gjaldmiðils í samanburði við aðild að stærra gjaldmiðlasvæði, svo sem evrusvæðinu. Í skýrslunni er fjallað um áhrif ólíkra valkosta, meðal annars á peningastefnu, fjármálastöðugleika, gengissveiflum, verðbólgu og stöðu Íslands sem lítils opins hagkerfis. Skýrslan var kynnt á fundi ríkisstjórnar í morgun og verður birt síðar í dag.
Hópnum var stýrt af Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðingi OECD, sem situr í peningastefnunefnd Englandsbanka. Auk hennar sátu í hópnum Hilde Christiane Bjørnland, prófessor við Norska viðskiptaháskólann, Steinar Holden, prófessor við Háskólann í Osló, og Stijn Claessens, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans, BIS, sem nú starfar við Yale-háskóla.
Ráðstefnan fer að mestu fram á íslensku* og er opin öllum en nauðsynlegt er að skrá sig.
Dagskrá ráðstefnunnar:
o Opnunarávarp: Daði Már Kristófersson fjármála- og efnhagsráðherra.
o Catherine L. Mann kynnir niðurstöðu skýrslu sérfræðingahóps um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum*.
o Boris Vujcic varabankastjóri evrópska seðlabankans *
o Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
o Pallborð – Krónan, evran og framtíð gjaldmiðlamála á Íslandi*
- Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra
- Catherine L. Mann, einn skýrsluhöfunda og fyrrum aðalhafræðingur OECD.
- Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri
- Sigríður Benediktsdóttir lektor við Columbia-háskóla
o Pallborð – Vinnumarkaður og samkeppnishæfni í breyttu gjaldmiðlaumhverfi
- Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
- Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands
- Gylfi Zoega prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands
- Una Jónsdóttir forstöðumaður hagfræðideildar Landsbanka Íslands
* Stjörnumerktir dagskrárliðir fara fram á ensku. Ráðstefnan verður tekin upp, textuð á íslensku og birt fljótlega á vef ráðuneytisins.